26. september 2022
Verk- eða tæknifræðingur óskast í áreiðanleikateymi - umsóknarfrestur til 10. október
Alcoa Fjarðaál leitar að öflugum verk- eða tæknifræðingi í starf áreiðanleikasérfræðings. Álver Alcoa Fjarðaáls er meðal þeirra fullkomnustu í heiminum og mikið er um sjálfvirkan búnað í stöðugri notkun. Áreiðanleikasérfræðingur vinnur að því að tryggja áreiðanleika búnaðarins með sérhæfðu ástandsgreiningarteymi sem styðst við margvíslegar mælingar og samanburð gagna. Fjarðaál er í samstarfi við leiðandi viðhaldsfyrirtæki í þróun sjálfvirkrar vöktunar vélbúnaðar í viðhaldskerfum.
Ábyrgð og verkefni
- Greina mikilvægi búnaðar
- Þróa mælikvarða fyrir áreiðanleika
- Tryggja réttar upplýsingar um búnað
- Rótargreiningar bilana og vandamála
- Reikna út kostnað og ávinning
- Stýra áreiðanleikaverkefnum
- Áætlanir og verklýsingar viðhaldsverka
- Greina viðhaldsgögn og vinna að umbótum
- Halda utan um varahlutalager
Menntun, hæfni og reynsla
- Verkfræði, tæknifræði eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Þriggja ára hagnýt starfsreynsla
- Geta til að skipuleggja og leiða verkefni
- Færni í samskiptum og teymisvinnu
- Frumkvæði og sjálfstæði
- Vilji til að læra og þróast í starfi
- Gott vald á íslensku og ensku
- Góð tölvukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið veitir Gísli Gylfason á gisli.gylfason (hjá) alcoa.com eða í síma 470 7700. Í samræmi við jafnréttisstefnu Alcoa Fjarðaáls og lög nr. 150/2020 eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um.
Hægt er að sækja um starfið á alþjóðlegum ráðningavef Alcoa.
Umsóknarfrestur er til og með mánudeginum 10. október.