06. nóvember 2018
Hlutfall kvenna í framkvæmdastjórnum 100 stærstu fyrirtækja er 26%
Félag kvenna í atvinnulífi (FKA) stóð fyrir ráðstefnunni „Rétt' upp hönd“ sem var haldin þann 31. október á Hilton Reykjavík Nordica. Félagið hefur ásamt samstarfsaðilum úr velferðarráðuneytinu, Sjóvá, Deloitte, Morgunblaðinu og Pipar/TBWA sett af stað hreyfiaflsverkefnið Jafnvægisvogina. Markmið Jafnvægisvogarinnar er að árið 2027 verði hlutfallið á milli kynja 40/60 í framkvæmdastjórnum fyrirtækja á Íslandi. Fimmtíu fyrirtæki skrifuðu undir viljayfirlýsingu um að vinna að jafnrétti á ráðstefnunni en meðal þeirra var Alcoa Fjarðaál.
Hlutfall kvenna í framkvæmdastjórnum 100 stærstu fyrirtækja landsins er einungis 26%, konur eru einungis 10% forstjóra og 19% stjórnarformanna. Staðan í stjórnum er þó umtalsvert betri þar sem konur eru orðnar 40% stjórnarmanna á móti 60% körlum í 100 stærstu fyrirtækjunum. Deloitte hefur tekið saman greiningu á 100 stærstu fyrirtækjum landsins mælt í veltu og komu þessar upplýsingar meðal annars fram á ráðstefnunni.
32,6% konur stjórnarmenn í fyrirtækjum með fleiri en 50 starfmenn
Ári eftir gildistöku laga um kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja sem tóku gildi árið 2013 var hlutfall kvenna orðið 33,2% í stjórnum fyrirtækja með yfir 50 starfsmenn, en hefur lækkað síðan þá um 0,6% eða niður í 32,6%.
Eitt af verkefnum Jafnvægisvogarinnar var að gera samantekt á stöðu stjórnenda eftir kyni í íslensku atvinnulífi og hjá opinberum aðilum. Hafa niðurstöðurnar verið birtar í mælaborði sem aðgengilegt er á heimasíðu FKA. Í mælaborðinu kemur fram að á árinu 2017 voru konur 24% stjórnarformanna íslenskra fyrirtækja, óháð stærð, sem er lítilsháttar hækkun frá aldamótum þegar konur voru 22% stjórnarformanna.
Konur í framkvæmdastjórnum eru einungis 22% í skráðum félögum og 26% í 100 stærstu fyrirtækjum landsins, mælt eftir veltu. Þess má geta að hjá Fjarðaáli sitja þrjár konur í framkvæmdastjórn fyrirtækisins en það jafngildir 25% hlutfalli.
Viljayfirlýsingin
Ljóst að töluverðar breytingar þurfa að eiga sér stað til þess að yfirlýstu markmiði Jafnvægisvogar-innar verði náð. Sem liður í því vitundarátaki skrifaði Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttisráðherra undir viljayfirlýsinguna. Á sama tíma skrifuðu á milli fjörutíu og fimmtíu fyrirtæki og opinberir aðilar, þ.m.t. Alcoa Fjarðaál, undir viljayfirlýsingu um að beita sér fyrir auknu kynjajafnvægi innan sinna vébanda og vinna að markmiðum Jafnvægisvogar FKA næstu fimm árin. Fyrirtæki og stofnanir vilja þannig sýna í verki að þau hafi áhuga á að komast lengra í þessum efnum. Strax á næsta ári verða veittar viðurkenningar þar sem dregin eru fram í sviðljósið fyrirtæki og opinberir aðilar sem hafa náð markmiðum Jafnvægisvogarinnar.
Þátttakendur rétta upp hönd fyrir fleiri konum í stjórnum fyrirtækja.
T.f.v.: Dagmar Ýr Stefánsdóttir og Guðný Björg Hauksdóttir, sem báðar sitja í framkvæmdastjórn Fjarðaáls, fylgjast með ráðstefnunni.