13. september 2017

Alcoa Fjarðaál auglýsir eftir umsóknum um samfélagsstyrki

Tvisvar sinnum á ári, að vori og að hausti afhendir Alcoa Fjarðaál styrki til ýmiss konar samfélagsverkefna á Austurlandi. Umsóknarfrestur um styrk í haustúthlutun rennur út þann 1. október nk.

Framtíðarhagsmunir Alcoa Fjarðaáls og samfélagsins fara saman. Alcoa leggur sitt af mörkum á hverju ári til að stuðla að framgangi góðra mála á Austurlandi í eftirfarandi flokkum:

  • Umhverfi og náttúruvernd
  • Öryggi og heilsa
  • Menntun og þjálfun
  • Menning, tómstundir og félagsstörf

Vinsamlegast skoðið síðu um samfélagsstyrki til þess að hlaða niður umsóknareyðublaði. Athugið að af sérstökum ástæðum hefur umsóknarfrestur nú verið framlengdur til 1. október, þótt annar skiladagur sé tilgreindur á síðunni.