12. desember 2016

22 útskrifast úr framhaldsnámi við Stóriðjuskóla Fjarðaáls

 

Þann 7. desember síðastliðinn útskrifuðust 22 starfsmenn frá Stóriðjuskóla Fjarðaáls. Að skólanum standa Alcoa Fjarðaál, Austurbrú og Verkmenntaskóli Austurlands. Er þetta í þriðja sinn sem nemendur útskrifast úr framhaldsnámi Stóriðjuskólans, en skólinn hóf göngu sína haustið 2011. Útskriftin fór fram í mötuneyti fyrirtækisins, að loknum kynningum á lokaverkefnum nemenda.

 

PIMG_1469ABCD

Útskriftarhópurinn. Efri röð frá vinstri: Sindri Svavarsson, Guðmundur Gísli Svavarsson, Ágúst Rúnar Þorbergsson, Kristján Svavarsson, Úlfar Þór Svavarsson, Jeff Clemmensen, Marinó Eiður Gylfason, Piotr Marcjaniak, Teitur Már Símonarson, Kári Gunnlaugsson, Sveinbjörn Reynisson, Ólafur Gunnarsson, Ragnar Högnason og Sigurjón Þórir Guðmundsson.
Neðri röð frá vinstri: Poul Jepsen, Guðmundur Sigurðsson, Höskuldur Ólafsson, Rafal Baginski, Dawid Kizewski, Karin Birgitta Axelsdóttir, Starri Hjartarson, Magnús Ingi Svavarsson.

Í framhaldsnáminu fást nemendur m.a. við viðhaldsmál, fræðast um umhverfis-, öryggis- og heilsumál og öðlast dýpri þekkingu á starfsemi alls fyrirtækisins.  Í lok annar er unnið að lokaverkefnum sem nemendur kynna við útskrift og að þessu sinni voru þau af fjölbreyttum toga. Höfðu þau öll umbætur að leiðarljósi og er óhætt að segja að verkefnin hafi borið starfsfólki Fjarðaáls frábært vitni.

Nám við Stóriðjuskóla Fjarðaáls er hægt að fá metið til eininga á framhaldsskólastigi.  Verkmenntaskóli Austurlands hefur samþykkt að meta grunnnámið til allt að 18 eininga og framhaldsnámið til allt að 20 eininga. Samtals er því hægt að fá metnar 38 einingar hjá VA.

Alls hafa 70 starfsmenn lokið fyrri hluta Stóriðjuskóla Fjarðaáls og 53 hafa lokið framhaldsnámi. Öllum þeim sem ljúka þriggja anna grunnnámi stendur til boða að halda áfram í framhaldsnámið.

 

PIMG_1150
Úlfar Þór Svavarsson og Rafal Baginski kynna lokaverkefni sitt um plast og plastnotkun. Vitundarvakning hefur orðið í þessum málum en betur má ef duga skal og ljóst að allir geta lagt sitt að mörkum, bæði í vinnu og heima fyrir.

 

PIMG_1237
Teitur Már Símonarson ásamt sonum sínum.

 

PIMG_1250
Guðmundur Sigurðsson ávarpaði hópinn fyrir hönd nemenda.

 

PIMG_1309
Karin Birgitta Axelsdóttir.

 

PIMG_1313
Kári Gunnlaugsson.