 |
 |
 |
 |
 |



Prentvæn útgáfa
go
|
 |
18. desember 2010
Búið að ráða niðurlögum eldsins
Sprenging varð í spennistöð álvers Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði skömmu eftir klukkan fimm í dag. Við sprenginguna varð eldur laus í spennistöðinni. Enginn slasaðist í sprengingunni, en rafmagn fór af álverinu.
Starfsmönnum álversins tókst með snarræði að ná tökum á ástandinu og byrjuðu að koma straumi á álverið upp úr klukkan 7 í kvöld. Slökkvilið Fjarðabyggðar tókst á tíunda tímanum í kvöld að ráða niðurlögum eldsins. Ekki er vitað hvað olli sprengingunni en málið er í rannsókn. Ekki er heldur vitað um tjón vegna eldsins á þessari stundu, né hvaða áhrif hann muni hafa á framleiðslu álversins.
|
 |
|
|
|