Áfram


Prentvæn útgáfa
go

8. desember 2010
Metþátttaka í sjálfboðaliðaverkefnum Alcoa

Nær helmingur starfsmanna Alcoa um allan heim, tók  þátt í ýmsum sjálfboðaliðaverkefnum á þessu ári. Meira en 29.000 starfsmenn í 24 löndum gáfu vinnu sína til samfélagsins í samtals 1.000 verkefnum. Þeirra á meðal eru rúmlega 100 starfsmenn Fjarðaáls.

Starfsmenn Alcoa geta sjálfir stungið upp á verkefnum sem þeir telja að geti bætt samfélagið og ef ákveðinn fjöldi starfsmanna tekur þátt í þeim, greiðir Samfélagssjóður Alcoa ýmist um 168.000 kr. (1-5 starfsmenn) eða um 336.000 kr. (6 starfsmenn eða fleiri) sem renna til þeirrar stofnunar eða félags sem unnið er fyrir.
 
Samtals nutu 59.000 börn aðstoðar sjálfboðaliðanna í ár, 16.000 tré voru gróðursett og 240 almenningsgarðar, ár og útivistarsvæði voru endurbætt. Þá framreiddu sjálfboðaliðar um 18.000 máltíðir fyrir bágstadda og lagfærðu 300 athvörf og félagsheimili.
 
„Hvar sem Alcoa starfar í heiminum, viljum við vera virkir og gefandi þátttakendur í samfélaginu,” segir Klaus Kleinfeld, forstjóri og stjórnarformaður Alcoa. „Fyrirtækið hvetur starfsmenn til að gefa af tíma sínum, og deila þekkingu sinni og kröftum til stuðnings málefnum sem þeim finnast mikilvæg og styrkja stoðir samfélagsins.”
 
Á Íslandi tóku 113 starfsmenn, ásamt fjölskyldum sínum og öðrum sjálfboðaliðum, samtals 276 manns, þátt í tíu verkefnum til þess að bæta samfélagið á Austurlandi. Verkefnin voru þessi:
 
  • Útiskólastofur voru settar upp við Egilsstaðaskóla og Grunnskólann á Reyðarfirði.
  • Sólpallur var byggður við Fjórðungssjúkrahúsið á Neskaupstað.
  • Sjálfboðaliðar undirbjuggu Franska daga á Fáskrúðsfirði, m.a. með byggingu eldstæðis.
  • Húsnæði Blús-, rokk- og djassklúbbsins á Neskaupstað var endurbætt.
  • Golfvöllurinn á Eskifirði var lagfærður og bættur.
  • Starfsstöðvar björgunarsveitanna Gerpis á Neskaupstað og Ársólar á Reyðarfirði voru endurbættar.
  • Lagðir voru kaplar o.fl. í nýja skíðalyftu í Stafdal á Fjarðarheiði.
 
Samfélagssjóður Alcoa (Alcoa Foundation) greiddi samtals um 2,8 milljónir króna með þessum verkefnum til viðkomandi félaga og stofnana, en fjárframlagið er meðal annars notað til efniskaupa vegna verkefnanna.
 
Laugardaginn 11. desember munu svo starfsmenn vinna með Eskifjarðardeild Rauða krossins við málningu á húsnæði deildarinnar og pökkun á gjöfum til bágstaddra á Íslandi, í Rússlandi og Malaví.






Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Betra líf á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað


Sjálfboðaliðar byggðu útipall við sjúkrahúsið í Neskaupstað til þess að betur fari um starfsfólk og sjúklinga á sólskinsdögum.



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Golfvöllur á Eskifirði endurbættur


Vaskir sjálfboðaliðar sinntu ýmsum verkum fyrir Golfklúbb Byggðarholts á Eskifirði.