Áfram


Prentvæn útgáfa
go

20. desember 2010
Samfélagssjóður Alcoa gefur tæpar 6 milljónir króna til hjálparstarfs hér á landi

Þeim fjölgar stöðugt sem leita aðstoðar Hjálparstarfs kirkjunnar og í dag fékk stofnunin 50.000 dollara styrk frá Samfélagssjóði Alcoa í Bandaríkjunum til að aðstoða einstaklinga og fjölskyldur í kreppu.

Styrkurinn  nemur 5,7 milljónum íslenskra króna. Honum verður varið árið 2011 til  matar- og lyfjaaðstoðar, ráðgjafar og hjálpar vegna skólagöngu og tómstunda barna. Þetta er þriðja árið í röð sem Hjálparstarfið fær styrk frá Samfélagssjóði Alcoa. 
 
Starfsárið 2009-2010 tók Hjálparstarf kirkjunnar við rúmlega 5000 umsóknum frá einstaklingum og fjölskyldum í  tæplega 60 af 76 sveitarfélögum landsins.  Úthlutanir vegna þessara umsókna voru samtals  rúmlega 11.700  sem var 60% aukning  frá árinu áður. Aðstoðin tók breytingum vegna nýrra aðstæðna. Innihaldi matarpakka var breytt í samræmi við hækkun verðlags og nýrrar samsetningar umsækjendahópsins sem bæði yngdist og jafnaðist að kynjum.
 
Öryrkjum, sem alltaf hafa verið fjölmennasti hópurinn, fækkaði hlutfallslega með tilkomu fleiri atvinnulausra á umsækjendaskrá. Farið var fram á gögn um tekjur og gjöld til að meta hverjir þyrftu mest á hjálp að halda.  
 
Um 400 sjálboðaliðar komu að verkefnum innanlandsaðstoðar Hjálparstarfsins á þessu tímabili sem var nýlunda, en þeir voru nánast engir fyrir kreppu.



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Góður málstaður


Jónas Þ. Þórisson frá Hjálparstofnun kirkjunnar, og Erna Indriðadóttir frá Alcoa Fjarðaáli, takast í hendur til að innsigla samstarfið.