Áfram


Prentvæn útgáfa
go

13. desember 2010
Alcoa Fjarðaál semur við Afl og RSÍ

Afl Starfsgreinafélg og Rafiðnaðarsamband Íslands hafa gert samning við Alcoa Fjarðaál um að félagsmenn þessara félaga í álverinu á Reyðarfirði fái greiddar tvær eingreiðslur fjótlega eftir áramót.

Um er að ræða eins konar bráðabirgðasamning sem gildir meðan unnið verður að nýjum kjarasamningi. Kjarasamningur þessara aðila rann út í lok nóvember sl., en samningaviðræður á milli Fjarðaáls, Afls og Rafiðnaðarsambandsins hafa staðið yfir síðan í október. Þar hefur komið fram með skýrum hætti að fjölmörg samningsatriði, sem taka þarf til endurskoðunar, krefjast mikillar vinnu af hálfu allra aðila. Stefnt er að því í nýrri viðræðu- og verkáætlun að samningur verði undirritaður eigi síðar en 30. apríl 2011.
 
Samkomulagið felur í sér að félagsmenn Afls og Rafiðnaðarsambandsins fá greiddar tvær eingreiðslur og að launaliður nýs samnings tekur gildi 1. maí 2011, jafnvel þótt það dragist fram yfir þann tíma að ganga frá samningi.
Eingreiðslan er 135.000 kr. sem greidd verður 15. janúar nk. til þeirra starfsmanna Alcoa sem eru í þessum félögum.  Önnur eingreiðsla til félagsmanna, sem er bundin við starfsaldur, greiðist 1. mars en hún verður á bilinu 41-165 þúsund krónur.  Þetta er fyrsti samningurinn sem gerður er á þessum vetri.