 |
 |
 |
 |
 |



Prentvæn útgáfa
go
|
 |
2. desember 2010
Skipulagsstofnun skilar áliti vegna álvers á Bakka við Húsavík
Skipulagsstofnun hefur birt álit sitt á mati á umhverfisáhrifum vegna álvers á Bakka með allt að 346 þúsund tonna ársframleiðslu, Kröfluvirkjunar II, Þeistareykjavirkjunar, háspennulína að Bakka og sameiginlegu mati ofangreindra framkvæmda.
Þann 25. nóvember birti Skipulagsstofnun álit sitt á mati á umhverfisáhrifum vegna álvers á Bakka með allt að 346 þúsund tonna ársframleiðslu, Kröfluvirkjunar II, Þeistareykjavirkjunar, háspennulína að Bakka og sameiginlegu mati ofangreindra framkvæmda. Þetta er í fyrsta sinn sem sameiginlegt mat fer fram fyrir bæði álver, orkuver og háspennulínur. Í áliti á mati á umhverfisáhrifum vegna álvers á Bakka kemur fram að Skipulagsstofnun leggur ekki til að sett verði skilyrði vegna framkvæmda við álver á Bakka umfram það sem kemur fram í matsskýrslu framkvæmdaaðila. Með áliti Skipulagsstofnunar lýkur vinnu við mat á umhverfisáhrifum ofangreindra framkvæmda. Þar með er mikilvægum áfanga lokið, en mat á umhverfisáhrifum er einn þáttur af mörgum varðandi hagkvæmniathuganir vegna álvers á Bakka. Það er sveitarstjórnanna á Norðurlandi að meta alla þá þætti sem tengjast hugsanlegum framkvæmdum á svæðinu og veita leyfi fyrir þeim. Matsskýrslur og álit Skipulagsstofnunar má nálgast hér: http://www.skipulagsstofnun.is/skipulagsstofnun/frettir/nr/304
|
 |
|
|
|