Áfram


Prentvæn útgáfa
go

4. nóvember 2010
Fjarðaál fær símenntunarverðlaun Þekkingarnetsins

Alcoa Fjarðaál  fékk  nýlega  símenntunarverðlaun Þekkingarnets Austurlands fyrir virkt fræðslustarf og stuðning við þekkingaruppbyggingu og samfélagsþróun. 

Fyrir skemmstu var Fjarðaáli veitt símenntunarviðurkenning Þekkingarnets Austurlands.  Viðurkenningin er veitt fyrir virkt fræðslustarf og stuðning við þekkingaruppbyggingu og  samfélagsþróun.   Umfangsmikið fræðslustarf fer fram hjá Fjarðaáli, þar sem fræðslu á sviði umhverfis-  öryggis- og heilbrigðismála ber hæst.   Allir nýir starfsmenn hefja störf á því að sitja námskeið til að búa sig undir að takast á við störfin í álverinu og eldri starfsmenn sækja endurmenntunarnámskeið.  Það stendur til að efla fræðslustarfið enn frekar með því að koma upp stóriðjunámi, auk þess að efla endurmenntun enn frekar. 
 
Á myndinni hér á síðunni má sjá starfsmenn mannauðsteymisins fagna viðurkenningunni með nemendum á námskeiði í rafmagnsteikningum.  Rafmagnsnámskeiðið er ágætt dæmi um fræðslustarf Fjarðaáls, en þar er um að ræða 10 vikna námskeið sem Hjálmar Jóhannesson kennari við Verkmenntaskóla Austurlands sér um.  Á námskeiðinu fer fram öflug upprifjun í notkun rafmagnsteikninga og er það metið til eininga í Verkmenntaskólanum.



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Móttaka viðurkenningarinnar


T.f.v. Elín Jónsdóttir, Sigurður Ólafsson og Jóhanna Seljan, öll frá mannauðsteymi Fjarðaáls, eru stolt af viðurkenningunni.