Áfram


Prentvæn útgáfa
go

5. nóvember 2010
Alcoa hvetur til endurvinnslu áldósa með nýrri lausn fyrir iPhone

Nýlega tilkynnti Alcoa útgáfu ókeypis hugbúnaðar sem hægt er að nota í iPhone, Ipod touch og iPad sem hvetur neytendur til endurvinnslu áldósa á auðveldan og skemmtilegan hátt.

Þessi nýi hugbúnaður – sem kallast „AluminateTM” – mun hjálpa neytendum að finna endurvinnslustöðvar, fylgjast með hversu margar áldósir þeir senda í endurvinnslu og reikna út upphæð þess fjár sem þeir afla um leið og þeir vernda umhverfið með endurvinnslu áldósa.

AluminateTM hugbúnaðurinn býður upp á ýmsar leiðir sem gera almenningi kleift að sjá framlag sitt til umhverfismála með endurvinnslu áldósa. Með honum er m.a. hægt að:
  • fylgjast með framlagi einstaklings eða hóps til endurvinnslu – sem gefur tækifæri á skemmtilegri samkeppni um endurvinnslu
  • reikna út þá upphæð sem einstaklingur getur fengið miðað við fjölda áldósa (undan drykkjum, mat og gæludýrafóðri)
  • finna endurvinnslustöð
  • deila árangrinum með öðrum á Facebook eða með tölvupósti
  • „álramma” (aluminate) mynd af sér og setja á netið
  • horfa á myndbönd og lesa skemmtilegan fróðleik um hvernig endurvinnsla áls getur sparað rafmagn og verndað umhverfið
 
„Þessi hugbúnaður er sá auðveldasti sem hægt er að finna fyrir þá sem vilja endurvinna áldósir. Með honum er hægt að fylgjast með magni áldósa sem þú setur í endurvinnslu og hvað þú færð í peningum til viðbótar við ávinninginn fyrir umhverfið,” segir Beth Schmitt, forstjóri endurvinnslumála hjá Alcoa. „Þetta er frábært fyrir samtök sem vilja stofna til samkeppni um endurvinnslu og hvetja aðra til að taka þátt.”
Aluminate hugbúnaðurinn er fyrirtaks viðbót við annað fræðslu- og kynningarefni sem Alcoa gefur út til þess að auka hlutfall endurvinnslu. Alcoa og Aluminum Association hafa sett sér þá sgernu að auka hlutfall áldósa sem skilað er til endurvinnslu í Bandaríkjunum upp í 75% fyrir árið 2015. Beth Schmitt bendir á að ef hver Bandaríkjamaður setur aðeins eina dós til viðbótar í endurvinnslu í hverri viku, verði því marki náð.
 
Hægt er að nálgast Aluminate hugbúnaðinn og hlaða niður ókeypis í Apple App Store og nota leitarorðið „Aluminate.” Meiri upplýsingar um hugbúnaðinn er að finna á alcoa.com.


 
.



Næsta endurvinnslustöð?


Með nýja hugbúnaðinum er auðvelt að finna næstu endurvinnslustöð (í Bandaríkjunum).