Áfram


Prentvæn útgáfa
go

17. september 2010
Alcoa hlýtur gæðavottun fyrir sjálfbærni

Alcoa hefur hlotið hina virtu Cradle to Cradle gæðavottun fyrir sérstaklega góðan árangur í sjálfbærni og umhverfsimálum við framleiðslu áls. Þetta var tilkynnt á alþjóðasýningunni Ál 2010 sem nú stendur yfir í Essen í Þýskalandi.

Alcoa er fyrsti álframleiðandinn sem hlýtur þessa eftirsóttu vottun frá alþjóðafyrirtækinu MBDC, sem sérhæfir sig í sjálfstæðri ráðgjöf og vöruvottun sem snýr að sjálfbærni.
 
„Alcoa hefur stöðugt sýnt betri árangur í að gera vörur sínar öruggar, heilsusamlegar og endurvinnanlegar. Ég vil óska Alcoa til hamingju með þessa gæðavottun sem fyrirtækið hefur sannarlega unnið fyrir,“ segir Jay Bolus, aðstoðarforstjóri á tæknisviði MBDC
 
„Cradle to Cradle vottunin er mikil viðurkenning fyrir Alcoa og er veitt fyrst og fremst fyrir  sjálfbærni í framleiðslu á áli. Með þessari vottun getur Alcoa fullvissað viðskiptavini sína um að fyrirtækið er sífellt að auka sjálfbærni álsins, allt frá upphafi framleiðslunnar, í gegnum notkunferlið og síðan endurvinnsluna.,“ segir Kevin Anton, framkvæmdastjóri í sjálfbærnimála hjá Alcoa.
 
Alcoa hefur gert miklar úrbætur í framleiðslu á áli með því að minnka orkunotkun sem og vatnsnotkun, ásamt því að auka endurvinnslu. Fyrirtækið hefur minnkað losun gróðurhúsalofttegunda um 44% síðan árið 1990.
 
„Með því að kaupa ál frá Alcoa eru viðskiptavinir okkar að velja gæðavöru sem einnig er mjög umhverfisvæn,“ segir Tim Reyes, framkvæmdastjóri vörudeildar hjá Alcoa.
 



Fréttatilkynningin


Sjáið fréttatilkynninguna í fullri lengd, á ensku.
skoða


Viðurkenningin


Francesco Bassoli frá Alcoa, Marcos Ramos, forstjóri Alcoa í Evrópu og Jay Bolus frá MBDC.