 |
 |
 |
 |
 |



Prentvæn útgáfa
go
|
 |
13. september 2010
Alcoa framleiðir álfelgur fyrir Chevrolet bíla
General Motors, einn stærsti bílaframleiðandi heims, hefur valið Alcoa til að framleiða sérstaklega léttar álfelgur fyrir nýju línuna af Chevrolet Cruze Eco. Áður hafði GM gert samning við Alcoa um að fyrirtækið framleiddii álfelgur fyrir hinn byltingakennda rafbíl Chevrolet Volt.
Rafbíllinn Chevrolet Volt, sem er með innbyggðri rafstöð, er væntanlegur á markað í Bandaríkjunum undir lok ársins. Bíllinn þykir afar athyglisverður ekki síst fyrir þær sakir að hann er sérstaklega umhverfisvænn. Chevrolet Cruze var kynntur til leiks í fyrra og hefur fengið góðar viðtökur. Nýja Cruze Eco línan kemur á markað á næsta ári og mun skarta hinum nýju álfelgum frá Alcoa. „Alcoa hefur með háþróaðri framleiðslutækni einbeitt sér að því að smíða mjög léttar álfelgur, sem jafnframt eru vel hannaðar, sterkar og endingargóðar. Léttari álfelgur draga úr orkukostnaði og eru þar af leiðandi umhverfisvænni. Takmark okkar er einnig að þessar nýju álfelgur leiði til enn betri aksturseiginleika,“ segir Mike Parnell, aðstoðarframkvæmdastjóri álfelgudeildar Alcoa. „Það er mikill heiður fyrir okkur að starfa náið með General Motors í þróun og framleiðslu léttra, orkusparandi og umhverfsivænna álfelgna. Þessi samvinna hefur að okkar mati gengið mjög vel. General Motors bætist þar með í sífellt stækkandi hóp öflugra fyrirtækja sem hafa valið létt ál frá Alcoa,“ segir Parnell.
|
 |


|
|
|