Áfram


Prentvæn útgáfa
go

20. september 2010
Rúmlega þúsund gestir á þremur dögum

Sýningin Ál 2010 fór fram í Essen í Þýskalandi í síðustu viku og fékk mjög góða aðsókn. Alls heimsóttu um 18 þúsund gestir sýninguna en um 900 fyrirtæki voru með kynningarbás í sýningarhöllinni.

Fallega hannaður bás Alcoa fékk sannarlega sinn skerf af athyglinni og um 1100 gestir heimsóttu hann á þeim þremur dögum sem sýningin stóð yfir. Framkvæmdastjórar og markaðsfólk frá Alcoa héldu yfir 250 fundi með viðskiptavinum á sýningunni.
 
Margt skemmtilegt og spennandi var til sýnis í Alcoa básnum í Essen. Má þar nefna fjölda fallegra og nytsamlegra hluta sem hannaðir hafa verið úr áli fyrir heimili og fyrirtæki. En senuþjófurinn á sýningunni var án efa glæsilegur Silvestris hraðbátur sem smíðaður var úr Alcoa áli. Vakti hann óskipta athygli gesta og væntanlega hefur marga dreymt um að sigla honum á fögru Miðjarðarhafinu.


Vinsæll sýningarbás


Svipmyndir frá sýningarbás Alcoa.