


Prentvæn útgáfa
go
|
 |
12. ágúst 2010
Mikilvægt að styrkja stærsta þjóðgarð í Evrópu
Alcoa á Íslandi hefur veitt samtökunum Vinum Vatnajökuls 87 milljóna króna styrk til starfseminnar. Fyrirtækið hyggst styrka samtökin frekar á næstu árum.
Samtökin Vinir Vatnajökuls voru stofnuð á síðasta ári. Þá hafði undirbúningur staðið um nokkurt skeið en vegna efnahagshrunsins seinkaði formlegri stofnun samtakanna. Vatnajökulsþjóðgarður nær yfir rúmlega 13 þúsund ferkílómetra lands, eða allt frá suðurströndinni norður í Öxnafjörð. Nokkrar af merkustu náttúruperlum landsins og Evrópu eru innan þjóðgarðsins, til að mynda Jökulsárgljúfur. Þegar Alcoa var að hefja starfsemi sína hér á landi árið 2002 var undirrituð viljayfirlýsing við stjórnvöld. Í henni lýsti Alcoa yfir þeim ásetningi að styðja aðgerðir af hálfu ríkisstjórnarinnar og sveitarfélaganna að stofna verndarsvæði, svosem þjóðgarð. Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi, hefur tilkynnt stjórn Vina Vatnajökuls um styrkveitinguna og jafnframt sagt að fyrirtækið hafi í hyggju að styrkja samtökin frekar með framlögum á næstu árum. Tómas segir afar ánægjulegt að veita Vatnajökulsþjóðgarði þennan styrk, enda sé mikilvægt að taka þátt í að opna bæði fyrir Íslendingum og útlendingum þá þjóðargersemi sem garðurinn er. „Þetta er sérstaklega mikilvægt þar sem um er að ræða stærsta þjóðgarð í Evrópu sem á eftir að laða að sér ómældan fjölda ferðamanna í framtíðinni,“ segir Tómas. Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, er formaður stjórnar Vina Vatnajökuls. Hún segir fjárveitinguna veita samtökunum ómældan stuðning við að rækja hlutverk sitt, sem sé að afla fjár til að styrkja rannsóknir, kynningar- og fræðslustarf, sem stuðlar að því að sem flestir geti fræðst um og notið þjóðgarðsins.
|
 |


|