alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Nýjustu fréttir 

  Áfram


Prentvæn útgáfa
go

4. ágúst 2010
Alcoa verðlaunað fyrir nýjar álflöskur

Alcoa vann til hinna virtu DuPont demantaverðlauna fyrir nýjungar í drykkjarumbúðum. Alcoa vann til verðlaunanna fyrir hinar nýju álflöskur sem fyrirtækið framleiðir í samvinnu við fyrirtækið Exal.

Hinar nýju álflöskur, sem nefndar eru C2C, eru léttari og sterkari og auk þess ódýrari en þær álumbúðir sem fyrir eru á markaðnum.
„Uppfinningin og framleiðslan á þeim er tímamótaskref hvað varðar kostnað, áreiðanleika og hraða í framleiðslu. Þessar nýju álumbúðir munu koma öflugar inn á markaðinn,“ segir Curtis Hughes, aðstoðarframkvæmdastjóri viðskiptasviðs Alcoa.

DuPont verðlaunin eru veitt fyrir nýjungar á hönnun umbúða sem tengjast ýmiss konar framleiðslu. Þetta er í 22. sinn sem verðlaunin eru veitt og þykja þau mjög virt á sínu sviði. Alls voru 160 framlög alls staðar að úr heiminum tilnefnd í keppninni að þessu sinni. Demantaverðlaunin, sem Alcoa hlaut, er æðsta viðurkenning DuPont.
 
„Það er mikill heiður fyrir Alcoa að hljóta þessi virtu verðlaun og við erum að sjálfsögðu afar ánægð og stolt,“ segir Curtis Hughes. 
 



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Fallegar, léttar og endurvinnanlegar flöskur


Nýju C2C álflöskurnar frá Exal, sem unnar eru úr áli frá Alcoa, eru 40% léttari en aðrar álflöskur, en þola samt mun meira álag. Hið sama gildir um þær og áldósir: hægt er að endurvinna þær aftur og aftur, endalaust.

Allur réttur áskilinn © 2012 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina