


Prentvæn útgáfa
go
|
 |
10. júlí 2010
Útiskólastofur settar upp á Austurlandi
Útiskólastofur hafa verið útbúnar við Egilsstaðaskóla og Grunnskólann á Reyðarfirði. Foreldrafélög skólanna og starfsfólk Alcoa Fjarðaáls sáu um uppsetningu þeirra en framtakið var styrkt af Samfélagssjóði Alcoa og er hluti af sjálfboðaliðaverkefnum starfsmanna Fjarðaáls. Sjóðurinn hefur á undanförnum árum veitt á bilinu 2-3 milljónir króna til svokallaðra ACTION verkefna á Íslandi, en þetta eru sjálfboðaliðaverkefni, sem Alcoa starfsmenn um allan heim taka þátt í.
Ásta Ásgeirsdóttir, skólastjóri Grunnskólans á Reyðarfirði, segir útikennslustofuna við skólann bjóða upp á mikla möguleika. „Það er mjög gaman að geta boðið upp á kennslu utandyra og það er góð tilbreyting frá hefðbundnu skólastarfi. Við erum að sjálfsögðu himinlifandi með Action-verkefnið og viljum þakka Alcoa Fjarðáli fyrir góðan stuðning. Þetta verkefni mælist mjög vel fyrir hjá bæjarbúum og ekki síst nemendunum sjálfum,“ segir Ásta. Útiskólastofan er hönnuð sem opið svæði með skjólvegg, borðum og eldstæði og stendur hún við leikvöllinn á skólalóðinni. Ásta segir að markmiðið með útiskólastofunni sé að nýta umhverfið meira í kennslu og gera námið um leið fjölþættara og margbreytilegra. Guðmundur Sveinsson Kröyer var ábyrgðarmaður útiskólastofuverkefnisins á Egilsstöðum af hálfu starfsmanna Fjarðaáls. „Þetta hefur verið mjög skemmtilegt verkefni. Okkur tókst vel til að mínu mati. Svæðið var grisjað og búnir voru til göngustígar, eldstæði og skýli,“ segir Guðmundur sem sjálfur á tvö börn í Egilsstaðaskóla. Útiskólastofan er staðsett bak við skólann og var það skipulagt með útisvæði Norðlingaskóla í Reykjavík til hliðsjónar. „Uppsetning útiskólastofanna er hluti af Action-verkefni Fjarðaáls. Það hafa komið upp hugmyndir um að aðstoða fleiri grunnskóla á Austurlandi við að koma sér upp útiskólastofum og við hjá Fjarðaáli myndum gjarnan vilja taka þátt í því. Verkefnið er í þeim anda sem fyrirtækið vinnur eftir, sem er m.a. sjálfbærni til framtíðar,“ segir Erna Indriðadóttir, framkvæmdastjóri samfélags- og upplýsingamála hjá Fjarðaáli.
|
 |


|