alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Nýjustu fréttir 

  Áfram


Prentvæn útgáfa
go

20. júlí 2010
Um 40% af útflutningstekjum Fjarðaáls eftir á Íslandi

Alcoa Fjarðaál flutti ál út fyrir að jafnaði 200 milljónir króna á dag í fyrra, miðað við gengi dollarans í desember 2009. Um 40% útflutningstekna fyrirtækisins verða eftir hér á landi.

Heildarútflutningur Fjarðaáls á árinu var að andvirði 600 milljóna dollara, eða um 75 milljarða króna. Verðmæti útflutnings Fjarðaáls árið 2009 nam því rúmlega 1,4 milljörðum króna á viku eða rúmlega 200 milljónum króna á dag.
 
Um 40% allra vöruflutninga frá Íslandi eru flutningar á áli. Mjóeyrarhöfn í Reyðarfirði er önnur stærsta höfn landsins og um hana fara nú um 1,3 milljónir tonna af áli og aðföngum til álframleiðslu á ári. Um er að ræða hreint gæðaál, álblöndur sem m.a. eru notaðar í bifreiða- og flugvélaiðnaði, og álvírar sem m.a. eru notaðir í háspennustrengi, rafmagnskapla í húsbyggingar og fleira.


Allur réttur áskilinn © 2012 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina