alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Nýjustu fréttir 

  Áfram


Prentvæn útgáfa
go

3. júní 2010
Samfélagssjóðurinn styður umhverfismál á heimssýningunni

Hillary Rodham Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, tilkynnti á heimssýningunni í Shanghæ að Samfélagssjóður Alcoa  ætlaði að styðja umhverfisvæna stefnu bandaríska sýningarskálans  á heimssýningunni, sem stendur yfir næstu sex mánuði.  

Samfélagssjóður Alcoa, Alcoa Foundation, mun í samstarfi við bandaríska sýningarskálann USAP styrkja og kynna svokallað kolefnisspor (carbon footprint) á heimssýningunni. Kolefnisspor er mæling á því magni koltvísýrings sem fer út í andrúmsloftið þegar jarðefnaeldsneyti er brennt.
 
Framlag Samfélagssjóðsins á heimsýningunni er tileinkað  þemanu: Betri borg, betra líf. Sjóðurinn mun einnig styrkja sjálfstæða rannsókn á kolefnisspori með það að markmiði að draga úr gróðurhúsaáhrifum og stuðla að vistvænna umhverfi. Stefnt er að því að niðurstöður úr rannsókninni verði kunngerðar áður en heimssýningunni lýkur að hálfu ári liðnu.
 
Samfélagssjóður Alcoa er einn stærsti samfélagssjóður fyrirtækja í Bandaríkjunum. Sjóðurinn gegnir mikilvægu hlutverki í að styrkja tengsl Alcoa við samfélög um allan heim og hefur veitt styrki að upphæð samtals  515 milljónir Bandaríkjadala frá árinu 1952,  þegar hann var stofnaður.
 
„Ég er mjög stolt af þessu samstarfsverkefni Samfélagssjóðs Alcoa og USAP á heimssýningunni. Þetta sýnir hversu mikla umhverfislega ábyrgð Bandaríkjamenn taka,“ sagði Hillary Rodham Clinton.
 
„Við hjá Alcoa trúum því að með því að leggja okkur öll fram gerum við gott fyrirtæki enn betra, sem á móti skilar sér í því að ríkisstjórnir og samfélög í heiminum velja okkur til samstarfs. Þetta framtak Samfélagssjóðs Alcoa og USAP mun stuðla að umhverfisvænna samfélagi,“ segir Jinya Chen, forstjóri Alcoa í Asíu.
 

Allur réttur áskilinn © 2012 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina