Áfram


Prentvæn útgáfa
go

30. júní 2010
Starfsmenn Alcoa byggja sólpall við sjúkrahúsið í Neskaupstað

Á sólríkum laugardegi í júní mættu 12 starfsmenn Alcoa og fjölskyldur þeirrra, hátt í 30 manns, og byggðu saman veglegan sólpall við fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað. Nokkrir starfsmenn sjúkrahússins tóku einnig þátt í sjálfboðastarfinu.

Um var að ræða sjálfboðaverkefni sem fellur undir ACTION-prógrammið sem Styrktarsjóður Alcoa stendur fyrir um allan heim þar sem Alcoa er með starfsstöðvar. Ef tíu starfsmenn Alcoa eða fleiri taka þátt í sjálfboðaliðaverkefni í a.m.k. fjóra tíma, leggur sjóðurinn fram um 400.000 krónur til þess aðila sem unnið er fyrir. Það framlag rennur til sjúkrahússins vegna kaupa á timbri o.fl. í sólpallinn.
 
Magni Harðarson, starfsmaður Fjarðaáls, var upphafsmaður að framkvæmdinni. Hann lá í fjórar vikur á Fjórðungssjúkrahúsi Neskaupstaðar fyrr á árinu og vildi í þakklætisskyni fyrir frábæra umönnun gera eitthvað í staðinn fyrir sjúkrahúsið með ACTION-prógrammið í huga. Úr varð að forráðamenn sjúkrahússins völdu smíði sólpalls sem hafði verið á stefnuskránni í nokkur ár en ekki fengist fjármagn til þeirra framkvæmda þegar eldri hluti sjúkrahússins var endurbyggður árið 2007.
 
Sólpallasmíðin gekk vonum framar og sjálfboðaliðunum tókst að byggja hann á þeim fjórum klukkutímum sem tilætlaðir voru í verkið. Verkinu stýrði Björn Ágúst Sigurðsson frá verktakafyrirtækinu Svarthömrum, en hann hefur unnið sem smiður hjá sjúkrahúsinu. Hann hafði varla undan að finna verkefni fyrir fólkið - svo viljugir voru sjálfboðaliðarnir.
 
Valdimar Ó. Hermannsson, framkvæmdastjóri Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað, er að vonum ánægður með verkið.
 
„Það ríkti mikil eftirvænting á meðal starfsmanna og margra sjúklinga sjúkrahússins, þegar það fréttist að það yrði loks byggður sólpallur við sjúkrahúsið. Þetta frábæra framlag frá Alcoa Fjarðaáli skipti sköpum við að klára þetta þarfa verk. Það er alveg ljóst að sólpallurinn mun veita sjúklingum og starfsfólki margar gleðistundir í framtíðinni. Þá munu eldri borgarar í þjónustuíbúðunum Breiðablik einnig geta notið sólpallsins en hann snýr að sameiginlegum garði þeirra. Mig langar að þakka öllum sem tóku þátt í verkefninu og ég vil líka taka fram hversu duglegt og fórnfúst fólk vinnur hjá Fjarðaáli,“ segir Valdimar.



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Röskur hópur


Að loknu góðu dagsverki stilltu sjálfboðaliðarnir sér upp fyrir myndatöku á nýja pallinum.