


Prentvæn útgáfa
go
|
 |
16. júní 2010
Fimmtán sjálfboðaliðar komnir til Puerto Rico
Fimmtán sjálfboðaliðar frá Alcoa eru komnir til Puerto Rico í svokölluðum Earthwatch-leiðangri. Meðal sjálfboðaliðanna er Helgi Laxdal, starfsmaður Fjarðaáls, en hann mun ásamt félögum sínum frá Alcoa vinna að ýmsum umhverfismálum í Puerto Rico. Einnig eru með í för fulltrúar náttúruverndarsamtaka, sem Alcoa bauð að taka þátt, t.d. Ruslan Butovsky frá "Fund for Sustainable Development" í Moskvu og Belen Carro frá University of Coruña, San Ciprian á Spáni.
Þetta er í sjöunda skipti sem starfsmönnum Alcoa hefur boðist að taka þátt í Earthwatch-leiðangri en fyrirtækið hefur á síðustu sjö árum sent alls 94 starfsmenn frá mörgum stöðum í heiminum. Sjálfboðaliðarnir munu vinna að ýmsum umhverfismálum, m.a. vatnsöflun, rannsóknum sem tengjast loftlagsbreytingum og sjálfbærri þróun. Þeir munu aðstoða vísindamenn og fá þjálfun í ýmsum rannsóknum, m.a. í að mæla og merkja tré, telja eðlur og froska svo eitthvað sé nefnt. Sjálfboðaliðarnir halda úti dagbók og bloggi á meðan leiðangrinum stendur þar sem hægt er að fylgjast með hvernig þeim gengur í hitabeltisfrumskógum Puerto Rico. „Mér finnst það heiður að fá að taka þátt í þessum leiðangri og gera heiminn lífvænlegri fyrir næstu kynslóðir,“ segir Helgi sem er mikill umhverfissinni og útivistarmaður. Hann segist alltaf hafa langað til að taka þátt í verkefni sem þessu til að bæta umhverfið. „Mér leiðist að sjá þegar illa er gengið um náttúruna,“ segir hann. Það verður án efa spennandi og fróðlegt að fylgjast með ævintýrum Helga og félaga hans á blogginu. Bloggsíða Helga og félaga. Síða Alcoa um samstarfið við Earthwatch.
|
 |


|