alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Nýjustu fréttir 

  Áfram


Prentvæn útgáfa
go

14. júní 2010
Hamfaraflóð orsakar tímabundna lokun álvers Alcoa í Aviles á Spáni

Alcoa tilkynnti í dag að fyrirtækið hafi þurft í lok síðustu viku að hætta tímabundið framleiðslu í álveri þess í Aviles á Spáni vegna hamfaraflóða í Asturias-héraðinu á Spáni. Framleiðslugeta álversins í Alvires eru 93.000 tonn á ári.

Álverið í Aviles og svæðið umhverfis það urðu fyrir miklum flóðum í síðustu viku sem meðal annars lentu á tengivirkinu sem leiðir rafmagn inn í álverið.
 
Framleiðslustöðvun stendur yfir á meðan hreinsað er upp eftir flóðið og síðan verður reynt að meta skemmdirnar.
 
Viðskiptavinum álversins hefur verið tilkynnt um að grípa verði til hamfaraskilmála („force majeure”) í samningum sem hafa áhrif á sendingar og vöruafhendingu.
 
Þegar flóðið var um það bil að skella á tókst starfsfólki álversins að lyfta rafskautum á öruggan hátt upp úr kerunum og allir hjálpuðust að við að draga úr skaðanum vegna flóðsins. Þrátt fyrir þetta flæddi vatn yfir álverið og tengivirkið, og því varð að slökkva á kerunum og hefja hreinsi- og viðgerðarstarf. Í álverinu vinna um 500 starfsmenn Alcoa.
 
Alcoa er nú að vinna með fulltrúum sveitarfélaga og stjórnvalda, ásamt tryggingarfélögum fyrirtækisins, og mun greina nánar frá atvikum þegar skemmdir hafa verið metnar og hægt er að segja til um tímasetningu á hugsanlegri endurræsingu álversins.
 



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Myndin er tekin í kerskála álversins í Alvires, en árið 2008 lauk heilmikilli endurnýjun álversins til samræmingar við umhverfisstaðla Evrópusambandsins.

Allur réttur áskilinn © 2012 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina