alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Nýjustu fréttir 

  Áfram


Prentvæn útgáfa
go

17. maí 2010
Skila þarf athugasemdum fyrir 14. júní

Sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum fyrir framkvæmdir vegna álvers á Bakka, virkjana og raflína var kynnt á þremur kynningarfundum á Norðurlandi í byrjun maí og einum í Reykjavík. Mest fjölmenni var á fundinum á Húsavík, en þangað komu um 70 manns.  Samtals komu á fundina rúmlega 100 manns.  

Á fundunum var farið yfir helstu atriði hverrar frummatsskýrslu,  þ.e.  fyrir Kröfluvirkjun II, Þeistareykjavirkjun, álver á Bakka, háspennulínur frá virkjunum að álveri og sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum framkvæmdanna fjögurra. 
 
Sérfræðingar á vegum framkvæmdaaðila héldu stuttar kynningar á öllum framkvæmdum og svöruðu fyrirspurnum fundargesta. Að því búnu gafst gestum tækifæri á að skoða upplýsingaspjöld og ræða nánar við sérfræðinga.
 
Frestur til að gera athugasemdir við frummatsskýrslurnar til Skipulagsstofnunar rennur út 14. júní.



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Fundargestir á Húsavík kynna sér gögn varðandi frummatsskýrslurnar.

Allur réttur áskilinn © 2012 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina