 |
 |
 |
 |
 |



Prentvæn útgáfa
go
|
 |
7. maí 2010
Opið hús - Kynning á framkvæmdum á Norðausturlandi
Athugun Skipulagsstofnunar er hafin á frummatsskýrslum um mat á umhverfisáhrifum fyrir Kröfluvirkjun II, Þeistareykjavirkjun, háspennulínur frá virkjunum að álveri, álver á Bakka og sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum framkvæmdanna fjögurra. Í tilefni þess verður opið hús á Hótel Nordica mánudaginn 10. maí nk. kl. 15:00-19:00 þar sem frummatsskýrslur verða kynntar.
Fyrirkomulag verður þannig að húsið opnar kl. 15:00 en kl. 16:30 verða stuttar formlegar kynningar á öllum framkvæmdum. Fulltrúar framkvæmdaraðila svara fyrirspurnum og frekari upplýsingar um allar framkvæmdir verða á veggspjöldum. Allir velkomnir. Landsvirkjun, Landsnet, Þeistareykir ehf. og Alcoa.
|
 |


|
|
|