alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Nýjustu fréttir 

  Áfram


Prentvæn útgáfa
go

17. maí 2010
Paula Davis tekur við af Meg McDonald

Paula Davis hefur verið ráðin forstjóri Samfélagssjóðs Alcoa (Alcoa Foundation). Hún tekur við starfinu af hinni áströlsku Meg McDonald, sem ákvað eftir áralangt starf sem forstjóri sjóðsins, að flytja aftur til Ástralíu.

Sjóðurinn sem var stofnaður árið 1952 gegnir mikilvægu hlutverki í að styrkja tengsl Alcoa við samfélög um allan heim og hefur frá upphafi veitt styrki að upphæð samtals 515 milljónir Bandaríkjadala. Sjóðurinn styrkti m.a. í janúar síðastliðinn björgunarsveitir á Austurlandi um 100 þúsund dali eða 12,5 milljónir króna.  Hjálparstarf kirkjunnar fékk jafnháan styrk frá sjóðnum á síðasta ári.
 
Paula Davis var áður aðstoðarforstjóri samskiptadeildar Pepsi gosdrykkjaframleiðandans og þar áður starfaði hún sem framkvæmdastjóri samskiptadeildar Siemens USA.
 



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Paula Davis, hinn nýji forstjóri Samfélagssjóðs Alcoa.

Allur réttur áskilinn © 2012 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina