Áfram


Prentvæn útgáfa
go

27. apríl 2010
Um 100 sumarstarfsmenn ráðnir til Alcoa Fjarðaáls

Um 100 starfsmenn verða ráðnir í sumarafleysingar hjá Alcoa Fjarðaáli í sumar. Hjá fyrirtækinu starfa um 480 manns, auk rúmlega 300 verktaka

„Við erum mjög ánægð með að geta boðið um 100 sumarstörf, sérstaklega á þessum erfiðu tímum í efnhagslífinu. Það er ljóst að það er enn mikið atvinnuleysi í þjóðfélaginu í dag enda voru umsækjendur mun fleiri en þau störf sem í boði eru,“ segir Hanna Jóhannesdóttir, sem sér um ráðningar sumarfólks hjá Fjarðaáli.
 
Tæplega 80 af sumarstarfsmönnunum munu vinna við framleiðslustörf í álverinu í Reyðarfirði. Flestir koma af Austurlandi, eða 42 talsins, en 23 eru af höfuðborgarsvæðinu. Hanna segir að á bak við hvert og eitt stöðugildi liggi ráðningaferli sem hver og einn starfsmaður fari í gegnum áður en hann hefur störf.
 
Ráðningarferli Fjarðaáls tók talsverðum breytingum í apríl á síðasta ári. Fram að þeim tíma sá Capacent ráðgjafa- og ráðningaskrifstofa um móttöku og úrvinnslu umsókna en nú sér mannauðsteymi Fjarðaáls alfarið um þau mál.
 
Atvinnuleitendur sækja um starf hjá fyrirtækinu hér á heimasíðu Fjarðaáls.
 
„Mannauðsteymi Fjarðaáls sér um að fara yfir umsóknir, sem berast í gegnum ráðningagrunn. Það er nóg að gera enda berast fjölmargar umsóknir til okkar á hverjum degi,“ segir Hanna.
 



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Fjöldi sumarstarfsmanna verður ráðinn til Alcoa Fjarðaáls í sumar.