 |
 |
 |
 |
 |



Prentvæn útgáfa
go
|
 |
26. apríl 2010
Skipulagsbreytingar hjá Alcoa Fjarðaáli
Skipulagsbreytingar hafa nýlega átt sér stað hjá Alcoa Fjarðaáli.
Hafsteinn Viktorsson, sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra framleiðslu Fjarðaáls, flyst til móðurfélagsins í Evrópu. Þar mun hann starfa innan álframleiðslusviðs sem áreiðanleikasérfræðingur fyrir álver Alcoa í Evrópu ásamt því að sinna áreiðanleikamálum fyrir ný verkefni fyrirtækisins, m.a. í Saudi-Arabíu. Hafsteinn mun einnig sinna verkefnum tímabundið fyrir Alcoa Fjarðaál varðandi flutning félagsins til Alcoa í Evrópu. Hafsteinn er menntaður flugvélavirki frá Spartan School of Aeronautics og viðhaldsfræðingur frá Parks College of St. Louis University í Bandaríkjunum. Janne Sigurðsson tekur við sem framkvæmdastjóri framleiðslu Fjarðaáls. Janne hefur verið framkvæmdastjóri álframleiðslu hjá Fjarðaáli síðastliðin tvö ár og þar á undan var hún framkvæmdastjóri framleiðsluþróunar fyrirtækisins. Janne er cand scient í stærðfræði og tölvunarfræði frá Háskólanum í Álaborg. Kristinn Harðarson tekur við sem framkvæmdastjóri álframleiðslu Fjarðaáls. Kristinn hefur verið yfirverkfræðingur í kerskála álversins í Reyðarfirði frá stofnun þess. Kristinn er með M.Sc. gráðu í rekstrar- og iðnaðarverkfræði frá Tækniháskólanum í Kaupmannahöfn.
|
 |






|
|
|