 |
 |
 |
 |
 |



Prentvæn útgáfa
go
|
 |
30. apríl 2010
Kynningar á frummatsskýrslum á Norðausturlandi
Eftirtaldar kynningar verða haldnar á frummatsskýrslum um mat á umhverfisáhrifum fyrir Kröfluvirkjun II, Þeistareykjavirkjun, háspennulínur frá virkjunum að álveri, álver á Bakka og sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum framkvæmdanna fjögurra:
Opið hús verður í Ýdölum, Þingeyjarsveit mánudaginn 3. maí kl. 15:00-18:00 Opið hús verður á Fosshóteli Húsavík mánudaginn 3. maí kl. 20:00- 23:00 Opið hús verður í Reykjahlíðarskóla í Mývatnssveit 4. maí kl. 16:00-19:00 Fyrirkomulag kynninga verður þannig að um 30 mín. eftir að húsið opnar verða stuttar formlegar kynningar á öllum framkvæmdum. Fulltrúar framkvæmdaraðila svara fyrirspurnum og frekari upplýsingar um allar framkvæmdir verða á veggspjöldum. Vonumst til að sjá sem flesta.
|
 |
 Fosshótel á Húsavík, þar sem kynningarfundur verður haldinn á mánudagskvöld kl. 20:00.
|
|
|