 |
 |
 |
 |
 |



Prentvæn útgáfa
go
|
 |
30. apríl 2010
Stærð álvers á Bakka mun ráðast af orkunni sem verður fáanleg
Alcoa, Þeistareykir ehf, Landsvirkjun og Landsnet hafa undanfarin þrjú ár unnið að mati á umhverfisáhrifum fyrir álver á Bakka við Húsavík, Þeistareykjavirkjun, Kröfluvirkjun II og háspennulínur frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka. Í samræmi við úrskurð umhverfisráðherra frá 31. júlí 2008 hafa fyrirtækin jafnframt í sameiningu unnið að sameiginlegu mati á umhverfisáhrifum þessara fjögurra framkvæmda.
Sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum, þar sem fleiri en ein framkvæmd eru metnar saman, hefur ekki verið unnið áður en það var framkvæmt samkvæmt leiðbeiningum frá Skipulagsstofnun og í nánu samráði við stofnunina. Frummatsskýrslan um sameiginlega matið gefur yfirlit yfir allar framkvæmdirnar fjórar, sameiginleg umhverfisáhrif þeirra og helstu einstök áhrif önnur. Að öðru leyti eru frummatsskýrslur fyrir hverja framkvæmd sjálfstæðar. Kynning á á frummatsskýrslunum hófst í dag með auglýsingu á vef Skipulagsstofnunar. Í sameiginlega matinu eru umhverfisáhrif allt að 346 þúsund tonna álvers á Bakka metin. Uppbygging álversins mun haldast í hendur við framkvæmdir til orkuöflunar. Raforkusamningar liggja ekki fyrir á þessu stigi undirbúnings, en sameiginlega matið tekur til orku til álversins frá Kröfluvirkjun II (150 MW) og Þeistareykjavirkjun (200MW). Umhverfismat fyrir Bjarnarflagsvirkjun liggur þegar fyrir og er samanlagt afl þessara þriggja virkjana 440 MW. Miðað við áætlaða mestu stærð álversins, sem lögð er til grundvallar í sameiginlegu mati á umhverfisáhrifum, þarf allt að 137 MW afl til viðbótar en vonir standa til að þeirri þörf verði unnt að mæta síðar frá jarðhitasvæðum í Þingeyjarsýslum og samtengdu raforkukerfi landsins. Þessi atriði skýrast með frekari rannsóknum og vinnslu og jafnframt mun stefnumótun stjórnvalda skýrast með niðurstöðum rammaáætlunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða. Byggingaframkvæmdir við álver gætu í fyrsta lagi hafist á árinu 2013, ef samningar nást um verkefnið. Framleiðslugeta álversins mun ráðast of orkunni sem verður fáanleg. Um sameiginleg umhverfisáhrif framkvæmdanna segir meðal annars í sameiginlegu frummatsskýrslunni að allar framkvæmdir nema álver, muni að einhverju leyti skerða eldhraun, sem fellur undir sérstaka vernd skv. lögum um náttúruvernd. Vegna fyrirhugaðra framkvæmda muni að hámarki 130 hektarar eldhrauna raskast, en samanlagt umfang eldhrauna á svæðinu er rétt tæpir 90 þúsund hektarar. Heildarlosun koltvísýrnings (CO2) frá virkjunum og álveri kemur til með að nema um 14% af heildarlosun koltvísýringsígilda á ári frá Íslandi. Stærsti hlutinn kemur frá fyrirhugðu álveri, en losun þess er háð losunarheimildum. Áhrif vegna aukinnar losunar brennisteinsvetnis frá virkjununum eru talin verða óveruleg. Áhrif framkvæmdanna á votlendi á framkvæmdasvæðum eru talin verða nokkuð neikvæð með skerðingu 38 hektara votlendis á Bakka. Þá skerðist votlendi austan Vítis á Kröflusvæðinu um 8%. Gert er ráð fyrir endurheimt votlendis á móti því sem tapast vegna framkvæmda á Bakka og er það í samræmi við lög og reglur. Áhrif á fuglalíf verða neikvæð á framkvæmdatíma, en óveruleg á rekstrartíma. Ljóst er að framkvæmdir við virkjanir og álver munu skapa þúsundir starfa á uppbyggingartímanum. Bygging 346.000 tonna álvers skapar til að mynda rúmlega 5000 störf. Á rekstrartíma er gert ráð fyrir að 20 störf verði við rekstur jarðhitavirkjana, en að 650-960 bein og óbein störf skapist í tengslum við álver á Bakka og fer fjöldinn eftir því hvort reist verður 250.000 tonna álver eða álver á stærð við Fjarðaál í Reyðarfirði. Talið er að rekstur álversins muni hafa talsverð jákvæð áhrif á vinnumarkað á áhrifasvæðinu og eru allar líkur á því að þau verði mest á Húsavík og Akureyri. Könnun sem gerð var meðal ferðamanna bendir ekki til þess að bygging álvers muni leiða til fækkunar ferðamanna í hvalaskoðun. Frummatsskýrslurnar má nálgast hjá Skipulagsstofnun en einnig á heimasíðum Skipulagsstofnunar og framkvæmdaaðilanna fjögurra. Þær verða kynntar á opnu húsi í Þingeyjarsveit, Norðurþingi og Skútustaðahreppi. Fyrsti kynningarfundurinn verðir í Ýdölum mánudaginn 3.maí klukkan 15. Næsti fundur verður á Fosshóteli á Húsavík þá um kvöldið, klukkan 20:00. Daginn eftir, 4. maí, verður fundur í Reykjahlíðarskóla í Mývatnssveit klukkan 16:00. Kynningarfundur verður haldinn í Reykjavík 10.maí. Hér á síðu um álver á Bakka er frummatsskýrslan fyrir álverið en skýrsluna um sameiginlega matið er að finna á heimasíðu HRV.
|
 |
 Viltu skoða skýrsluna fyrir álver?

 Á sérstakri síðu um álver á Bakka er að finna frummatsskýrlsluna fyrir álver á Bakka, ásamt viðaukum. go
|
|
|