Áfram


Prentvæn útgáfa
go

22. mars 2010
Alcoa prófar nýja tækni til að virkja sólarorku

Alcoa og rannsóknamiðstöð orkumálaráðuneytis Bandaríkjanna um endurnýjanlega orkugjafa vinna nú að prófunum á nýrri tækni til að virkja sólarorku. Markmiðið er að lækka kostnað við gerð og rekstur sólarspegla til raforkuframleiðslu (e. Concentrating Solar Power technology) og gera þá samkeppnishæfa við aðrar leiðir til orkuframleiðslu.

Ný gerð sólarspegla, sem þróaðir voru af vísindamönnum við tæknimiðstöð Alcoa í Pittsburgh í Bandaríkjunum, var nýlega sett upp til prófunar í Colorado í Bandaríkjunum, á prófunarsvæði rannsóknamiðstöðvar um endurnýjanlega orkugjafa (National Renewable Energy Lab). Ætlunin er að prófa getu sólarspeglanna til að framleiða orku og meta hvernig hönnun þeirra reynist í samanburði við eldri tækni.
 
Þeir sólarspeglar sem nú eru á markaði nota flestir glerspegla til að safna sólarorku og breyta henni í hitaorku. Hitinn er síðan nýttur til að framleiða rafmagn með hefðbundinni túrbínu. Einn af kostum sólarspegla umfram sólarsellur, er að hægt er að geyma sólarorkuna sem þeir beisla, sem varma og nýta hann til rafmagnsframleiðslu þegar þörf er á.
 
Háglans-ál er notað í stað glers í  sólarspeglunum sem Alcoa hefur þróað. Þeir eru um það bil 12X6 metrar á stærð. Álið er bæði endingarbetra og umhverfisvænna en brothætt gler. Hönnun Alcoa á sólarspeglunum byggir á þróun fyrirtækisins á íhlutum fyrir flugvéla- og bílaiðnaðinn og tók mið af því að búnaðurinn hentaði til fjöldaframleiðslu.
 
Verkefnið er fjármagnað að hluta með 3,1 milljóna dala styrk frá orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna. Búist er við fyrstu niðurstöðum prófananna um mitt þetta ár og að því loknu taka við frekari rannsóknir.
 
Alcoa hefur lengi verið leiðandi á sviði sjálfbærra lausna fyrir viðskiptavini sína. Hægt er að endurvinna ál aftur og aftur, endalaust og það á þess vegna vel við að nota það við græna orkuframleiðslu.
 



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Orka sólarinnar fönguð með speglum


Sólarspeglarnir uppsettir hjá National Renewable Energy Lab.



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Sólarspeglar í smíðum


Hér má sjá sólarspeglana í smíðum hjá Alcoa.