Áfram


Prentvæn útgáfa
go

19. mars 2010
Jeff Clemmensen hlýtur hvunndagshetjuverðlaun starfsmannafélags Alcoa Fjarðaáls

Bandarísk hjón sem Jeff Clemmensen, starfsmaður Alcoa Fjarðaáls, aðstoðaði úr ógöngum í Oddsskarði síðasta sumar hafa stofnað styrktarsjóð fyrir „hvunndagshetjur“ Alcoa Fjarðaáls. Starfsmannafélagið Sómi mun árlega veita verðlaunin starfsmanni sem sýnir af sér sérstaka hjálpsemi við náungann. Jeff veitti fyrsta styrknum viðtöku á nýliðinni árshátíð Fjarðaáls.

Mary Ellen Gibson og Stephan Lamb eru komin á eftirlaun og voru í sumarfríi á Íslandi í júlí 2009. Þau lentu í því óhappi að setja óvart bensín á díselbílinn sem þau höfðu leigt. Þau áttuðu sig ekki á mistökunum fyrr en bíllinn stöðvaðist efst í Oddsskarði, á milli Eskifjarðar og Neskaupstaðar. Þar eru aðstæður allar aðrar en hjónin eiga að venjast frá sínum heimaslóðum, vegurinn mjór og ekkert vegrið. Þeim var því mjög brugðið.
 
Hjálpsöm kona með tvö börn í bílnum ók fram á bíl þeirra og bauð Mary Ellen far og fór með hana til Neskaupstaðar. Afi barnanna tók á móti þeim, útvegaði reipi og fór með Mary Ellen aftur upp í skarðið. Þá hafði Jeff Clemmensen, starfsmaður Alcoa Fjarðaáls ekið fram á Stephan og var búinn að festa reipi í bílinn og byrjaður að draga hann til Neskaupstaðar.
 
Hjónin lögðu í bréfi sínu til Tómasar Más Sigurðssonar, forstjóra Alcoa Fjarðaáls, áherslu á að Jeff hefði einnig veitt þeim andlega hjálp, talið í þau kjarkinn og sýnt einstakt hjartalag. Hann kom hjónunum á hótel og fór með þau í bíltúr um Norðfjörð. Daginn eftir var svo bíllinn kominn í lag og hjónin gátu haldið áfram ferð sinni um landið.
 
„Þetta var svo sem ekkert afrek. Ég var á leið heim úr vinnu og ók fram á lítinn bíl í vegkantinum, Eskifjarðarmegin við Oddsskarðsgöngin. Það var bara sjálfsagt mál að draga þau yfir í Neskaupstað og koma bílnum á verkstæði og fólkinu á hótel,“ segir Jeff Clemmensen.  „Þetta hefur sennilega tekið mig um fjóra tíma og konan mín var farin að ókyrrast, en það er alltaf gaman að geta hjálpað öðrum og aldrei datt mér í hug að ég fengi borgað fyrir viðvikið,“ bætti hann við.
 
Hvunndagshetjuverðlaun starfsmannafélagsins Sóma verða veitt á hverju ári á árshátíð Alcoa Fjarðaáls og hjónin munu leggja sjóðnum til 500  dollara árlega. Miðað við gengið nú nemur þessi upphæð 63.000 krónum.



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Málunum „reddað"


Jeff Clemmensen hugar að reipinu og Stephan Lamb fylgist með. Mary Ellen Gibson tók myndina.