 |
 |
 |
 |
 |



Prentvæn útgáfa
go
|
 |
8. janúar 2010
Hrókeringar og skellir!
Skákmaðurinn Bjarni Jens Kristinsson og blakkonan Helena Kristín Gunnarsdóttir sem hefur skorað ótal stig með skellum hlutu fyrir skömmu afreksstyrki úr Spretti, styrktarsjóði Alcoa Fjarðaáls og ÚÍA.
Bjarni Jens, sem býr á Hallormstað, er gallharður á því að ná stórmeistaraáfanga innan 10 ára. Pabbi hans kenndi honum mannganginn þegar hann var sex ára „en áhuginn kom ekki fyrir alvöru fyrr en nokkrum árum síðar,“ segir þessi 18 ára skákmaður sem nýverið varð Norðurlandameistari framhaldsskóla í skák með sveit Menntaskólans í Reykjavík. Bjarni Jens segir skákíþróttina bæði skemmtilega og spennandi, „og það er cool að tefla, að minnsta kosti hérlendis þar sem skákin er enn talin þjóðaríþrótt.” Bjarni tefldi á heimsmeistaramóti unglinga í skák sem fram fór í Tyrklandi í lok síðasta árs, „og þar gekk mér ágætlega, reyndar vonum framar. Ég var með fimm vinninga af 11 mögulegum sem var hæsta vinningshlutfall þeirra Íslendinga sem þarna kepptu. Styrkurinn kemur sér vel, því við þurfum sjálf að borga stóran hluta ferðakostnaðar við keppnisferðir til útlanda og ég mun nota styrkinn til þess,” segir Bjarni Jens Kristinsson skákmaður. Helena, sem spilar blak með Þrótti á Neskaupsstað, verður heldur ekki í vandræðum með að nýta sinn styrk því hún keppir með þremur landsliðum og er því mikið á ferðinni. Í desember var hún með U-17 ára landsliðinu við keppni í Danmörku en þessi 17 ára afrekskona spilar einnig með U-19 landsliðinu og A-landsliði Íslands. Bjarni og Helena Kristín fengu hvort um sig 100.000 króna afreksstyrk. Auk afreksstyrkja var úthlutað úr Spretti iðkendastyrkjum, þjálfarastyrkjum og félagsstyrkjum. Iðkendastyrki fengu: Bjartur Jóhannsson Neskaupstað skíði 50.000 Daði Fannar Sverrisson Fljótsdalshéraði frjálsar 50.000 Einar Bjarni Helgason Fljótsdalshéraði golf 50.000 Hjalti Þórarinn Ásmundsson Reyðarfirði glíma 50.000 Ingimar Guðjón Harðarson Fáskrúðsfirði knattspyrna 50.000 Lilja Tekla Jóhannsdóttir Neskaupstað skíði 50.000 Þjálfarastyrki fengu: Fimleikadeild Hattar Fljótsdalshéraði fimleikar 100.000 Karen Ragnarsdóttir Eskifirði skíði 35.000 Lovísa Hreinsdóttir Fljótsdalshéraði frjálsar 65.000 Félagsstyrki fengu: Hestamannafélagið Blær Neskaupstað hestaíþróttir 100.000 Ungmennafélagið Valur Reyðarfirði frjálsar 100.000 Alcoa Fjarðaál er stolt af að styrkja þetta unga íþróttafólk.
|
 |


|
|
|