

Prentvæn útgáfa
go
|
 |
23. júní 2009
Um hundrað konur í kaffiboði
Alcoa Fjarðaál bauð til kaffisamsætis í matsal álversins í Reyðarfirði í tilefni kvennadagsins 19.júní. Um 100 konur þáðu boðið.
Alcoa Fjarðaál bauð konum á Austurlandi til kaffisamsætis í matsal álversins í Reyðarfirði í tilefni kvennadagsins 19. Júní. Nær 100 konur þáðu boðið, bæði konur úr starfsmannahópi Fjarðaáls og verktaka á svæðinu, og konur sem búa á Austurlandi. Systkinin Benedikt Ernir og Bergey Stefánsbörn skemmtu konunum með söng og hljóðfæraleik, en ávörp fluttu Guðný Björg Hauksdóttir framkvæmdastjóri heilsu- og öryggismála hjá Fjarðaáli og Þuríður Sigurjónsdóttir rafvirki sem starfar í kerskála og á kranaverkstæði álversins. Guðný Björg velti fyrir sér hvernig „kvenvænn“ vinnustaður ætti að vera og minnti meðal annars á að launamunur kynjanna á Íslandi er tæplega 16% og hefur lítið breyst á undanförnum árum og Þuríður lýsti því hvernig það er fyrir konu að starfa sem rafvirki í álverinu. Hún sagði líka frá því hvers vegna hún hefði valið að verða rafvirki. Hún sagðist hafa viljað hafa nóg að gera og það ætti ekki við sig að vera á skrifstofu. Að loknu kaffisamsætinu var konunum boðið í skoðunarferð um álverslóðina. Þetta er svipuð dagskrá og haldin var í álverinu á kvennadaginn í fyrrasumar og þá mætti svipaður fjöldi kvenna í álverið til að halda upp á daginn. Alcoa Fjarðaál þakkar öllum þessum konum fyrir komuna.
|
 |
|