 |
 |
 |
 |
 |



Prentvæn útgáfa
go
|
 |
14. desember 2009
Eingöngu íslenskt ál notað í Masdar í Abu Dhabi
Eins og fram kom í fjölmiðlum nýlega hafa borgaryfirvöld í Abu Dhabi, sem er næst stærst furstadæmanna sjö sem mynda Sameinuðu arabísku furstadæmin, ákveðið að nýtt borgarhverfið Masdarborg verði algerlega umhverfisvænt og laust við losun gróðurhúsalofttegunda. Hafa borgaryfirvöld gert svo strangar kröfur að t.d. allt ál, sem notað er við uppbyggingu hverfisins, verður að vera íslenskt vegna þeirrar sérstöðu sinnar að vera framleitt með raforku úr endurnýjanlegum orkugjöfum.
Þetta kom fram í erindi Gríms Björnssonar, jarðeðlisfræðings hjá Reykjavik Geothermal, sem hann fluti nýlega á haustþingi Jarðhitafélagsins. Reykjavik Geothermal vinnur að nýtingu jarðhita fyrir Masdar og sagði Grímur að borgarhverfið eigi að vera kolefnishlutlaust og úrgangslaust og verða kælikerfi borgarinnar t.d. knúin með bæði sólarorku og jarðhita. Þá verður allt ál, hvort sem er í byggingar eða skiltagerð, að koma frá Íslandi og segir Grímur að verktakar komi til með að þurfa að framvísa upprunavottorðum frá birgjum, sem sanni hvaðan álið kemur. Að sögn Tómasar Sigurðssonar forstjóra Alcoa á Íslandi er hér um ákaflega jákvæðar fréttir að ræða fyrir Ísland og áliðnaðinn hér á landi vegna þeirrar sérstöðu sem framleiðslan hér hefur. „Umhverfiskröfur til framleiðslufyrirtækja í heiminum munu fara mjög vaxandi á komandi árum og hvað áliðnaðinn áhrærir tel ég að íslensku álfyrirtækin muni njóta ákveðins samkeppnisforskots í samanburði við mörg önnur álver þar sem orkuframleiðslunni fylgir meiri mengun. Við vitum að við framleiðum „grænan málm“ sem mun gegna lykil hlutverki í að draga úr hnattrænni losun gróðurhúsalofttegunda t.d. með léttari samgöngutækjum. Í framtíðinni munu birgjar snúa sér í auknu mæli til þeirra sem nota líka endurnýjanlega orkugjafa til framleiðslunnar. Þetta mun bara styrkja áliðnaðinn á Íslandi. “ segir Tómas.
|
 |


|
|
|