


Prentvæn útgáfa
go
|
 |
20. nóvember 2009
Alcoa lokar tímabundið tveimur álverum á Ítalíu
Alcoa hefur ákveðið að minnka framleiðslu í tveimur álverum á Ítalíu og loka þeim tímabundið frá og með næsta mánuði, þar sem ekki er víst að unnt verði að útvega þeim rafmagn á samkeppnishæfu verði í framtíðinni. Um tvö þúsund manns starfa við álverin og í afleiddum störfum vegna þeirra.
Samanlögð framleiðslugeta álvera Alcoa í Fusina og Portovesme á Ítalíu er 194 þúsund tonn á ári og eru bein og afleidd störf vegna þeirra um tvö þúsund. Alcoa hefur tilkynnt að þeim verði lokað tímabundið frá og með næsta mánuði vegna óvissu um raforkuverð til verksmiðjanna. Ástæðan er sú að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur komist að þeirri niðurstöðu að raforkuverðið sem Ítalir hafa boðið álverunum síðan 2005 samrýmist ekki reglum sambandsins og fer framkvæmdastjórnin jafnframt fram á að sá fjárhagslegi ábati sem Alcoa hafi haft af gjaldskránni á tímabilinu verði endurgreiddur. Alcoa hyggst áfrýja þessari niðurstöðu. Umrædd gjaldskrá hefur verið í gildi í rúman áratug og var samþykkt af Evrópusambandinu árið 1995 þegar Alcoa keypti reksturinn. Meginmarkmiðið með raforkusamningnum var að auka samkeppnishæfni orkufrekra stóriðjufyrirtækja á Ítalíu og samræma orkukostnað fyrirtækjanna því sem tíðkaðist hjá sambærilegum fyrirtækjum annars staðar á meginlandi Evrópu. Nánari upplýsingar
|
 |


|