


Prentvæn útgáfa
go
|
 |
20. júlí 2009
Landsmót ungmennafélaganna í heila öld
Landsmót ungmennafélaganna var haldið á glæsilegum nýjum íþróttaleikvangi Akureyringa í einmuna veðurblíðu.
Það voru sannkölluð tímamót þegar 26. landsmót UMFÍ fór fram fjórða sinn á Akureyri 9. – 12. júlí síðastliðinn, því fyrir hundrað árum var fyrsta landsmót ungmennafélaganna haldið á Akureyri. Árið 1909 setti bæjarfógeti mótið og séra Matthías Jochumsson hélt ræðu fyrir æsku landsins. Síðan hófst keppni í glímu, stökkum og hlaupum. Einn af viðburðum mótsins var knattspyrnuleikur milli Húsvíkinga og Akureyringa. Akureyringar náðu að skora eina mark leiksins og báru sigur úr býtum. Að launum fékk sigurliðið flaggstöng. Á Akureyri voru landsmót einnig haldin árin 1955 og 1981. Landsmótið 2009 tókst einnig í alla staði frábærlega. Það var haldið á glæsilegum nýjum íþróttaleikvangi Akureyringa í einmuna veðurblíðu. Íþróttafólk frá öllu landinu leiddi saman hesta sína í fjölbreyttum íþróttagreinum, auk ýmissa starfsíþrótta, allt frá dráttarvélarakstri til pönnukökubaksturs. Keppendur voru yfir 2000 og áhorfendur enn fleiri, enda mikil fjölbreytni í keppnisgreinum. Áætlað er að 10 til 15 þúsund manns hafi sótt landsmótið að þessu sinni. Þeir sem fylgst hafa eða tekið þátt í landsmóti eru sammála um að þar ráða æskan, hreystin og lífsgleðin ríkjum. Alcoa Fjarðaáli er sönn ánægja að því að hafa verið einn helsti styrktaraðili landsmóts ungmennafélaganna á hundrað ára afmælinu.
|
 |


|