

Prentvæn útgáfa
go
|
 |
9. júlí 2009
Betri afkoma Alcoa á öðrum ársfjórðungi 2009
Í gær tilkynnti Alcoa afkomu annars ársfjórðungs 2009, sem sýnir meðal annars að jafnvel þótt tap á rekstri fyrirtækisins hafi numið 312 milljónum Bandaríkjadala (40 milljörðum króna), gengur rekstur þess betur en á fyrsta ársfjórðungi, en þá nam tapið 480 milljónum dala (62 milljörðum króna).
Handbært fé frá rekstri jókst um 652 milljónir dala (84 milljarða) og veltufé frá rekstri var 328 milljónir dala (42 milljarða) sem er 599 milljón dala (77 milljarða) hækkun frá fyrsta ársfjórðungi. Þessar tölur sýna að víðtækar aðgerðir fyrirtækisins til þess að draga úr kostnaði, auka tekjur og bæta afkomuna, hafa borið árangur. Sölutekjurnar voru 4,2 milljarðar dala, sem er 2 prósentum hærra en á fyrsta ársfjórðungi en töluvert lægra en á sama tímabili árið 2008, en þá voru þær 7,2 milljarður dala. Helstu ástæðurnar fyrir þessum samdrætti eru lægra álverð og lokun nokkurra álvera og súrálsverksmiðja fyrirtækisins vegna minnkandi eftirspurnar. Meðalverð áls á öðrum ársfjórðungi var 1.485 Bandaríkjadalir á tonnið, sem samsvarar 9% hækkun frá fyrsta ársfjórðungi 2009, en 49% lækkun miðað við sama tímabil í fyrra. Efnahagskreppan hefur haft áhrif á flesta helstu viðskiptavini fyrirtækisins, þ.e. bifreiða-, samgöngu-, bygginga- og flugvélaiðnaðinn. „Aðgerðir okkar til að auka innkomu og framleiðni, ásamt því að stokka upp í eignasafninu, bera árangur. Nú hefur Alcoa meira úthald og minni kostnað að bera til þess að mæta mesta samdrætti í sögu áliðnaðarins,” sagði Klaus Kleinfeld, forstjóri Alcoa. „Rekstrarlegar og fjárhagslegar breytingar gera Alcoa kleift að laga sig að markaðinum, standa sig í samkeppninni og vaxa í arðbærustu geirum iðnaðarins eftir því sem efnahagslífið nær sér aftur á strik.” Samkvæmt áætlun var dregið úr nýjum fjárfestingum sem nemur um 50% frá árinu 2008 og ætlunin er að draga úr þeim á árinu 2010 sem nemur öðrum 50%. Gerð nýrrar báxítnámu í Juruti í Brasilíu gengur vel og fyrsta báxítið þaðan er væntanlegt innan þriggja mánaða. Stækkun og endurbætur á Alumar súrálsverksmiðjunni, sem auka afköst hennar úr 1,5 milljónum tonna á ári í 3,5 milljón tonn, hefur líka gengið vel og reiknað er með að fullri framleiðslu verði náð núna síðsumars. Í álframleiðslu var tap eftir skatta 178 milljónir dala, sem er 34 milljónum minna tap en á fyrsta ársfjórðungi, en þar munar um aukna framleiðni. Framleiðslan jókst um 26 þúsund tonn á þessum ársfjórðungi, aðallega vegna framleiðslumets á Íslandi. Einnig jókst eignarhluti Alcoa upp í 100% á tveimur álverum í Noregi, en á móti komu lokanir á álverum í Tennessee og Massena.
|
 |
|