alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Fréttir 

  Áfram

Prentvæn útgáfa
go

24. ágúst 2009
Nýir framkvæmdastjórar hjá Alcoa Fjarðaáli

Þrír nýir framkvæmdastjórar hafa tekið sæti í framkvæmdastjórn Alcoa Fjarðaáls. Magnús Þór Ásmundsson er nýr framkvæmdastjóri framleiðsluþróunar, Guðný Björg Hauksdóttir framkvæmdastjóri öryggis- og heilsu og Jóhann F. Helgason framkvæmdastjóri áreiðanleika.  Af tólf framkvæmdastjórum fyrirtækisins eru nú fjórar konur, en voru áður þrjár

Magnús Þór Ásmundsson, nýr framkvæmdastjóri framleiðsluþróunar, er rafmagnsverkfræðingur frá Háskóla Íslands og M.Sc. frá Danmarks Tekniske Universitet.  Hann kemur til Fjarðaáls með mikla þekkingu og reynslu á sviði framleiðslu og framleiðsluþróunar. Magnús  starfaði hjá Marel  á árunum 1990 – 2009,  fyrst sem sviðsstjóri í vöruþróun og  síðar sem framkvæmdastjóri framleiðslu.
 
Guðný Björg Hauksdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri öryggis- og heilsu hjá Alcoa Fjarðaáli. Guðný hóf störf hjá fyrirtækinu í janúar 2005 og starfaði í mannauðsteymi. Hún er stjórnmálafræðingur með diploma í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands. Guðný er fædd og uppalin á Reyðarfirði og starfaði áður hjá Hönnun hf.
 
Jóhann F. Helgason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri áreiðanleika hjá Fjarðaáli. Jóhann er vélfræðingur og tæknifræðingur frá Ingeniørhøjskolen í Arhus í Danmörku og hóf störf hjá fyrirtækinu í  ágúst 2006 sem viðhaldssérfræðingur í áreiðanleikateymi.    Jóhann kom til Fjarðaáls frá Labyrinth Business Solution í Boston þar sem hann starfaði við forritun og innleiðingu viðskiptahugbúnaðarins Microsoft Business Solution Navision.
 



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Guðný Björg Hauksdóttir


Guðný Björg Hauksdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri öryggis og heilsu.



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Jóhann F. Helgason


Jóhann F. Helgason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri áreiðanleika hjá Fjarðaáli.



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Magnús Þór Ásmundsson


Magnús Þór Ásmundsson er nýr framkvæmdastjóri framleiðsluþróunar.

Allur réttur áskilinn © 2009 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina