alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Fréttir 

  Áfram

Prentvæn útgáfa
go

16. apríl 2009
Ráðið í sumarstörf hjá Alcoa Fjarðaáli

Yfir 550 umsóknir bárust um auglýst sumarstörf hjá álveri Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði. Ráðið verður í um sextíu tímabundar stöður framleiðslustarfsmanna og iðnaðarmanna í sumar.

Umsóknarfrestur rann út 14. apríl síðastliðinn, en ráðið verður í störfin á næstu vikum. Umsóknir bárust alls staðar að af landinu og flestar af höfuðborgarsvæðinu. Hluti sumarstarfsmanna hefur störf 1. maí en flestir munu hefja störf 1. júní næstkomandi og starfa út ágústmánuð.
 
Um 450 manns starfa hjá Alcoa Fjarðaáli og um 250-300 manns til viðbótar við störf nátengd álverinu á álverssvæðinu.
 

Allur réttur áskilinn © 2009 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina