alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Fréttir 

  Áfram

Prentvæn útgáfa
go

26. mars 2009
Umhverfisvæn álframleiðsla á Íslandi

Það er liður í loftslagsstefnu Alcoa að nota sem mest endurnýjanlega orkugjafa til áframleiðslu og draga þannig úr notkun jarðefnaeldsneytis.  Uppbygging fyrirtækisins hér á landi er liður í þeirri viðleitni. 

Loftslagsmál eru í deiglunni um allan heim, enda eitt mikilvægasta viðfangsefni samtímans. Alcoa hefur lengi fylgt þeirri stefnu að vera leiðandi í aðgerðum í loftslagsmálum og taka virkan þátt í umræðum um málaflokkinn, bæði á alþjóðlegum vettvangi og í þeim löndum þar sem fyrirtækið er með  starfsemi.
 
Alcoa Fjarðaál hefur útbúið einblöðung um loftslagsstefnu Alcoa á íslensku. Það er brýnt að loftslagsmál séu rædd í alþjóðlegu samhengi og einblöðungnum er ætlað að vera innlegg í þá umræðu á Íslandi.
 
 


Einblöðungur um loftslagsmál


Hér er hægt að hlaða niður eða skoða einblöðung um loftslagsmál sem Alcoa Fjarðaál hefur látið útbúa.
skoða PDF (133 KB)

Allur réttur áskilinn © 2009 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina