alcoa.com

Alcoa á Íslandi
Fréttir 

  Áfram

Prentvæn útgáfa
go

2. mars 2009
Hjálparstarf kirkjunnar hlýtur styrk úr Samfélagssjóði Alcoa

Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi, afhenti í dag Jónasi Þóri Þórissyni, framkvæmdastjóra Hjálparstarfs kirkjunnar 5,8 milljón króna framlag Samfélagssjóðs Alcoa í Bandaríkjunum til innanlandsaðstoðar Hjálparstarfsins.

Tómas sagði við það tækifæri að það væri mikilvægt að fyrirtæki sem væru aflögufær sýndu samfélagslega ábyrgð og létu fé af hendi rakna til að styðja þá sem farið hafa illa út úr þeim efnahagsþrengingum sem nú ganga yfir heiminn. Alcoa hefði tekið þá stefnu að beina styrkjum sínum þetta árið sérstaklega til þeirra sem eiga um sárt að binda vegna kreppunnar og til samfélagslegra verkefna sem nýttust sem flestum. Allir vissu hversu mikilvægt Hjálparstarf kirkjunnar væri og það væri ánægjuefni að geta stutt það góða starf.
 
Jónas Þórir þakkaði fyrir góðan stuðning sem kæmi sér afar vel þar sem gríðarleg fjölgun hefði orðið á beiðnum um aðstoð. Í janúar var fjölgunin 152% miðað við sama mánuð árið 2008. Nýjar tölur um fjölda umsókna sýna að þeim hefur fjölgað enn meira í febrúar, eða um tæp 300%. Í febrúar í fyrra bárust 139 umsóknir en í nýliðnum mánuði voru þær 410. Mjög margir eru að sækja um í fyrsta sinn. Mesta fjölgunin er meðal fólks sem misst hefur vinnuna. Þar eru miðaldra karlmenn langfjölmennastir en mikil fjölgun er líka meðal einstæðra mæðra og einstæðra karla á örorkubótum. Fram kom hjá Jónasi að það væru þung spor fyrir marga að þurfa að leita sér aðstoðar og nauðsynlegt væri að þjóðfélagið aðlagaði viðhorf sitt til samfélagslegrar aðstoðar að núverandi efnahagsaðstæðum.
 
Fjölgunin kemur fram alls staðar á landinu og greinilegt er að aukið atvinnuleysi á landsbyggðinni er farið að skila sér í auknum umsóknum. Net Hjálparstarfsins er þéttriðið með samvinnu við presta um allt land, félagsráðgjafa á stofnunum og námsráðgjafa í framhaldsskólum.
 
„Hjálparstarf kirkjunnar leitast við að mæta nýjum og breyttum forsendum í þeirri aðstoð sem veitt er. Markmiðið er að veita faglega ráðgjöf og mæta grunnþörfum umsækjenda. Góður stuðningur Alcoa breytir sannarlega miklu,“ segir Jónas.
 




Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Styrkurinn afhentur


Jónas Þór Þórisson tekur við styrk samfélagssjóðs Alcoa frá Tómasi Má Sigurðssyni, forstjóra Alcoa á Íslandi.

Allur réttur áskilinn © 2009 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina