

Prentvæn útgáfa
go
|
 |
14. janúar 2009
Afkoma Alcoa árið 2008
Á fjórða ársfjórðungi síðasta árs varð yfir 900 milljóna dala tap af reglulegum rekstri Alcoa. Sé litið á árið 2008 í heild nam hagnaður af reglulegum rekstri hins vegar tæplega 230 milljónum Bandaríkjadala.
Alcoa Inc. kynnti í vikunni afkomu fjórða ársfjórðungs 2008 og ársins í heild. Á fjórða ársfjórðungi var tap af reglulegum rekstri félagsins 929 milljónir Bandaríkjadala, eða um 117 milljarðar íslenskra króna, miðað við núverandi gengi. Heildartapið á fjórðungnum nam um 1,2 milljörðum Bandaríkjadala, eða um 150 milljörðum íslenskra króna. Tekjur ársins námu samtals 26,9 milljörðum Bandaríkjadala, eða um 3.400 milljörðum íslenskra króna. Hagnaður af reglulegum rekstri á árinu nam 229 milljónum Bandaríkjadala eða um 29 milljörðum íslenskra króna. Í fréttatilkynningu Alcoa kemur fram að tölurnar endurspegli áhrif mikillar lækkunar á málmverði, minnkandi eftirspurnar og kostnað vegna aðhaldsaðgerða sem fyrirtækið hefur gripið til í ljósi efnahagsaðstæðna.
|
 |
|