

Prentvæn útgáfa
go
|
 |
22. ágúst 2008
Nýtt upplýsingaskilti við þjóðveginn
Það er í mörg horn að líta þegar nýtt álver er gangsett. Í síðustu viku var nýtt upplýsingaskilti sett upp við þjóðveginn ofan við kerskála Alcoa Fjarðaáls.
Það var kominn tími til að endurnýja skiltið, enda var skiltið sem þarna var fyrir, frá því að samningur um byggingu álversins var undirritaður árið 2003. Í ljósi þess að fullbyggt álver blasir nú við frá veginum þótti rétt að á skiltinu væri frekar fjallað starfsemi álversins en áætlanir um byggingu þess. Um fjórðungur framleiðslu álversins fer í framleiðslu fullunninna álvíra og á nýja skiltinu er ljósmynd af Þórdísi Örnu Stefánsdóttur starfsmanni í álframleiðslu og Jitka Hamrová, starfsmanni í málmvinnslu við álvírarrúllur, tilbúnar til útflutnings. Ljósmyndina tók Hreinn Magnússon en skiltið var hannað af KOM almannatengslum og Íslensku auglýsingastofunni. Um uppsetningu skiltisins sá Skiltaval á Reyðarfirði.
|
 |


|