Alcoa á Íslandi
Fréttir - 2008 

  

Prentvæn útgáfa
go

4. júlí 2008
Alcoa og Landsvirkjun taka upp viðræður um orkukaup

Alcoa og Landsvirkjun munu á næstunni taka upp formlegar viðræður um orkukaup vegna álvers á Bakka. Stefnt er að því að viðræðunum ljúki fyrir árslok 2009.

Þetta er meðal þess sem kveðið er á um í endurnýjaðri viljayfirlýsingu fyrirtækjanna sem Bernt Reitan, aðstoðarforstjóri Alcoa og Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, undirrituðu í síðustu viku.
 
Landsvirkjun og Þeistareykir ehf. munu fram til ársloka 2009 bora samtals tíu tilraunaborholur á háhitasvæðunum í Þingeyjarsýslu til að kanna orkugetu svæðanna. Alcoa mun taka þátt í kostnaði við tilraunaboranirnar, samkvæmt nánara samkomulagi. Þær áætlanir sem unnið er eftir gera ráð fyrir að álverið noti 400 MW af raforku. Komi í ljós að meiri raforka verði til reiðu munu aðilar ræða möguleika á að hún verði nýtt fyrir álver á Bakka.



Smelltu á myndina til þess að stækka hana.


Við Kröflu


Fulltrúar Alcoa, Landsvirkjunar, Þeistareykja ehf. og sveitarfélaganna á svæðinu kynntu sér rannsóknaboranir við Kröflu.

Allur réttur áskilinn © 2008 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina