

Prentvæn útgáfa
go
|
 |
29. janúar 2008
Framlag til þekkingar
Þekkingarsetrið á Egilsstöðum ehf. hefur fengið 10 milljón króna styrk frá Alcoa Foundation til að undirbúa meistaranám á sviði umhverfis- og þjóðgarðastjórnunar.
Þekkingarsetrið á Egilsstöðum ehf. mun beita sér fyrir því að staðbundið háskólanám á Austurlandi hefjist árið 2009. Námið verður á sviði umhverfis- og þjóðgarðastjórnunar. Markmiðið er að kennsla fari fram á Austurlandi og byggi á sérstæðu náttúru Austurlands og auðveldu aðgengi að jöklum, öræfum, eldgosasvæðum og skóglendi. Einnig verður Vatnajökulsþjóðgarður vettvangur rannsókna á sviði stjórnunar og náttúru. Námið verður staðbundið og mun vísindafólk á Austurlandi koma að kennslu- og rannsóknahluta námsins, en jafnframt er ætlunin að leita til innlendra og erlendra sérfræðinga. Alcoa samfélagssjóðurinn styður nærsamfélög og góðgerðastarfsemi víða um heim. Árið 2006 veitti stofnunin jafnvirði 1,7 milljarðs króna til eflingar 215 nærsamfélaga sem Alcoa hefur starfsemi í. Alcoa samfélagssjóðurinn er sjálfstæð stofnun sem var stofnuð 1952. Eignir stofnunarinnar nema um 35 milljörðum króna, en frá stofnun hefur hún veitt um 29 milljarða króna í styrki.
|
 |
|