Námið í Nesskóla er ætlað nemendum sem ekki hafa náð að fóta sig í hefðbundnu skólastarfi. Áhersla er lögð á aðra þætti en almennt er gert í skólakerfinu. Nemendurnir sem eru að hefja þetta nám eru á aldrinum 13 – 15 ára. Þeir hafa fram að þessu verið utangátta í skólakerfinu og oft endað í einstaklingskennslu með kennara eða stuðningsfulltrúa. Þessi hugmyndafræði byggir á því að virkja krafta nemenda á jákvæðan hátt og vinna saman að hinum ýmsu verkefnum. Kennt er skv. aðalnámskrá grunnskóla, þó með áherslu á ensku, íslensku og stærðfræði þar sem hver nemandi hefur sína einstaklingsnámskrá. Einnig verður lagt mikið upp úr verklegu námi, s.s. smíðum og starfsnámi.
Höfuðáhersla er lögð á að samþætta verklegt nám og aðalnámskrá í bóklegum fögum, kanna áhugasvið nemenda og miða kennsluna við það. Í dag mynda 4 nemendur kjarnann að náminu og 2-3 að auki hafa komið í verklegu tímana.
Námið fer fram á Mýrargötu 8, þar sem áður var skólaeldhús Nesskóla. Hluti af námi nemenda verður að sinna léttu viðhaldi húsnæðisins með umsjón smíðakennara og handmenntakennara. Verkefnið er ekki einungis hugsað fyrir nemendur sem eiga í erfiðleikum í Nesskóla, heldur einnig fyrir aðra grunnskólanemendur í Fjarðabyggð sem eru í sömu sporum, þegar reynsla verður komin á það.
Fjölgreinanámið er unnið í samvinnu við Skólaskrifstofu Austurlands, sem mun aðstoða við að móta námið, og einnig hefði þetta verkefni ekki verið mögulegt nema með stuðningi sveitarfélagsins og fyrirtækja.