

Prentvæn útgáfa
go
|
 |
30. júní 2006
Alcoa ræður verkefnisstjóra á Norðurlandi
Kristján Þ. Halldórsson rekstrarverkfræðingur hefur verið ráðinn verkefnisstjóri samfélagsmála fyrir Alcoa á Norðurlandi. Aðalstarf hans verður að miðla upplýsingum um Alcoa og hugsanlegt álver á Bakka við Húsavík til hagsmunaðila á Norðurlandi.
Kristján, sem lauk BSc námi í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands árið 1985 og í rekstrarverkfræði frá háskólanum í Álaborg árið 1992, hefur yfirgripsmikla þekkingu á samfélagsmálum á Norðausturlandi. Hann var formaður samstarfsnefndar um sameiningu sjö sveitarfélaga á svæðinu og leiddi síðan sameiningu fjögurra þeirra. Kristján sat í sveitarstjórn Öxarfjarðarhrepps síðastliðin átta ár og hefur sinnt margvíslegum nefndarstörfum fyrir hreppinn. Kristján mun starfa að undirbúningsvinnu vegna hugsanlegs álvers á Norðurlandi í framhaldi af samkomulagi ríkisstjórnarinnar, Húsavíkurbæjar og Alcoa um að kanna nánar hagkvæmni þess að reisa 250 þúsund tonna álver á Bakka við Húsavík. Starf Kristjáns felst fyrst og fremst í því að miðla upplýsingum um Alcoa og hugsanlegt álver á Húsavík til hagsmunaaðila á Norðausturlandi svo sem sveitarfélaga, stofnana félagasamtaka og íbúa. Hann mun einnig miðla upplýsingum til Alcoa um það sem helst er í deiglunni á svæðinu og snertir verkefnið á einhvern hátt.
|
 |


|