Alcoa á Íslandi
Fréttatilkynningar 
2004-07-08

Fyrsta skóflustunga tekin að álveri í Fjarðabyggð

 • Allt að 1.800 starfsmenn við framkvæmdir þegar þeir verða flestir 2006
• Álverið tekur til starfa vorið 2007
• Skapar 750 störf á Austurlandi til frambúðar


Fyrsta skóflustunga að 322.000 tonna álveri Alcoa Fjarðaáls var tekin í Reyðarfirði í dag að viðstöddu fjölmenni. Athöfnin markar upphaf byggingarframkvæmda sem eru hluti af umfangsmestu fjárfestingu Íslandssögunnar og er áætlað að þeim ljúki árið 2007. Framkvæmdirnar munu hafa mikil og jákvæð áhrif á atvinnulíf á Austurlandi og skapa um 2.300 ársverk á næstu þremur árum, en reiknað er með að allt að 750 störf skapist á Austurlandi til frambúðar í tengslum við álverið.
Alþjóðlega verktakafyrirtækið Bechtel mun annast byggingu álversins í samstarfi við íslensku verkfræðisamsteypuna HRV. Búist er við að á bilinu 1.500-1.800 manns muni starfa við framkvæmdirnar þegar þeir verða flestir á árinu 2006.  Á framkvæmdatímanum verður lögð áhersla á náið samráð við heimamenn, öryggismál starfsmanna og að áhrifum á umhverfi og lífríki verði haldið í lágmarki.
Skóflustungan var tekin sameiginlega af þeim Valgerði Sverrisdóttur iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Guðmundi Bjarnasyni, bæjarstjóra í Fjarðabyggð, Bernt Reitan, forstjóra frumframleiðslu hjá Alcoa, og Andy Greig, yfirmanni námu- og málmasviðs hjá Bechtel. Notaðar voru sérsmíðaðar skóflur úr áli sem eru íslenskt handverk, gerðar hjá Járnsmiðju Óðins í Kópavogi. Meðal viðstaddra voru ráðherrar, þingmenn, sveitarstjórnarmenn í Fjarðabyggð, og forsvarsmenn fyrirtækja og verkalýðshreyfingar á Austurlandi. Áður en athöfnin fór fram fluttu iðnaðar- og viðskiptaráðherra, bæjarstjóri Fjarðabyggðar og fulltrúar fyrirtækjanna stutt ávörp.
Reiknað er með að framkvæmdirnar muni kosta um 1,1 milljarð bandaríkjadollara, jafnvirði um 80 milljarða íslenskra króna miðað við núverandi gengi. Búist er við að í byggingu álversins fari 120.000 rúmmetrar af steypu, 25.000 tonn af stáli og að færa þurfi 3-4 milljónir rúmmetra af jarðvegi í tengslum við framkvæmdirnar. Jarðvegur úr grunni álversins verður m.a. notaður til uppfyllingar í tengslum við hafnarframkvæmdir á svæðinu.
Álver Alcoa Fjarðaáls mun verða eitt hið fullkomnasta, öruggasta og umhverfisvænasta í heimi og er áformað að það taki til starfa vorið 2007. Leitast verður við að hafa hlutfall karla og kvenna í starfsmannahópi fyrirtækisins jafnt og er höfð hliðsjón af því markmiði við hönnun álversins.

***
Nánari upplýsingar veita:

Craig Bridge, framkvæmdastjóri Íslandsverkefnis Bechtel,

í síma 662 2752, netfang: chbridge@bechtel.com

 Erna Indriðardóttir, kynningarstjóri Alcoa Fjarðaáls
 í síma 843 7709, netfang: erna.indridadottir@alcoa.com




Smelltu á myndina til þess að stækka hana.



Frá vinstri: Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls, Guðmundur Bjarnason, bæjarstjóri í Fjarðabyggð, Bernt Reitan, forstjóri frumframleiðslu hjá Alcoa, Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og Andy Greig, yfirmaður námu- og málmasviðs Bechtel.

Allur réttur áskilinn © 2008 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina