Alcoa á Íslandi
Fréttatilkynningar 
2004-03-01

Alcoa veitti 27 milljónum dollara til samfélagsmála á síðasta ári

Styrkir alþjóðlega álfyrirtækisins Alcoa til samfélags- og góðgerðamála námu alls um 26,8 milljónum bandaríkjadollara á síðasta ári, jafnvirði tæplega 1,9 milljarða íslenskra króna miðað við núverandi gengi. Bæði er um að ræða styrki sem fyrirtækið veitti beint og styrki sem Alcoa-sjóðurinn (Alcoa Foundation) veitti á árinu. Styrkir Alcoa námu um 11,3 milljónum dollara, jafnvirði um 791 milljónar króna, en styrkir Alcoa-sjóðsins námu 15 milljónum dollara, sem jafngildir rúmlega einum milljarði króna. Alcoa-sjóðurinn var stofnaður árið 1952 og veitir fé til margvíslegrar uppbyggingar í þeim samfélögum þar sem Alcoa rekur starfsemi. Sjóðurinn veitti meira en 1.600 styrki í 32 löndum á síðasta ári.

Auk beinna fjárstyrkja leggja Alcoa og Alcoa-sjóðurinn ýmislegt fleira af mörkum til samfélaga þar sem fyrirtækið er með starfsemi. Meðal annars hvetur fyrirtækið starfsmenn til að vinna sjálfboðastörf í þágu heimabyggða sinna og veitir í því skyni frí frá vinnu einu sinni á ári. Meira en 6.000 starfsmenn Alcoa í 20 löndum um heim allan unnu slík störf dagana 17. – 23. nóvember á síðasta ári. Sem dæmi má nefna að starfsmenn fyrirtækisins í Mexíkó endurbyggðu og máluðu leikvelli fyrir börn, starfsmenn í Brasilíu fræddu börn um umhverfismál, og starfsmenn í Rúmeníu lögðu skólabörnum lið við átak í umhverfismálum, svo fáein dæmi séu nefnd.

Alcoa-sjóðurinn styrkir einnig starfsmenn til þátttöku í margvíslegu sjálfboða- og félagsstarfi í heimabyggðum sínum. Á síðasta ári námu styrkir fyrirtækisins við góðgerða- og félagasamtök sem starfsmenn eiga aðild að tæplega 1,5 milljónum bandaríkjadollara, sem jafngildir rúmlega 100 milljónum íslenskra króna á núverandi gengi. Alls jukust framlög sjóðsins á þessu sviði um 47% milli ára.

Að auki má nefna að Alcoa-sjóðurinn hleypti á síðasta ári af stokkunum nýrri áætlun um styrki til félagasamtaka sem vilja tileinka sér aðferðir og vinnubrögð fyrirtækjarekstrar til að ná betri árangri í starfsemi sinni.

Alcoa er fremsti framleiðandi heims á hrááli, unnum álvörum og súráli. Fyrirtækið framleiðir málma sem notað er í margs konar iðnaði, s.s. við smíði samgöngutækja, í umbúðaverksmiðjum og byggingariðnaði. Einnig framleiðir fyrirtækið vínylveggplötur, hluti sem notaðir eru í rafkerfum bifreiða og ýmsan neytendavarning, s.s. Reynolds Wrap® álumbúðapappír, Alcoa® hjól og Baco® álpappír. Hjá fyrirtækinu starfa 127.000 manns í 40 löndum. Frekari upplýsingar má nálgast á vefsetrinu www.alcoa.com

Allur réttur áskilinn © 2008 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina