Alcoa á Íslandi
Fréttatilkynningar 
2004-12-09

Nemendur VA fræddir um umhverfis og öryggismál

Tveir fulltrúar frá Alcoa, Patrick Grover, umhverfissérfræðingur og Maria Mickle, sérfræðingur í heilsu- og öryggismálum, komu gagngert frá Bandaríkjunum fyrr í þessari viku til þess að upplýsa nemendur álbrautar Verkmenntaskóla Austurlands um umhverfis-, heilsu- og öryggismál. Kennslan fór fram dagana 6. - 8. desember og voru m.a. kynntar þær kröfur sem Alcoa hefur sett sér varðandi álver Fjarðaáls, en þær samræmast því markmiði Alcoa að teljast besta fyrirtæki í heimi. Alcoa hefur mikla alþjóðlega reynslu á þessu sviði, sem fyrirtækið er tilbuið að deila með þeim sem búa í samfélögum umhverfis starfsstaði sína.  Í slíkri fræðslu er áhersla lögð á mikilvægi meðvitaðrar hugsunar um umhverfis-, heilsu- og öryggismál, ekki einungis í starfi heldur einnig heima fyrir - til að tryggja velferð einstaklingsins og fjölskyldunnar.

Allur réttur áskilinn © 2008 Alcoa Inc.
vefir einstakra landa

innskráning viðskiptavina